Eyjan

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Stórsókn í niðurskurði

Mynd
Nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur í Viðey þann 27. maí. Mynd: Reykjavíkurborg.
Mynd

Nýir vendir sópa best, segir einhvers staðar. Ekki skal fullyrt að það eigi við um meirihluta borgarstjórnar í Reykjavík, en sjálfsagt er að gefa honum tækifæri til að sanna sig. Eftir nokkurra mánaða setu fer vissulega mikið fyrir honum en það er ekki tryggingu fyrir farsælum ákvörðunum. Enn sem komið er hefur meirihlutinn helst áunnið sér orð fyrir að vera haldinn uppsagnar-æði. Ekki er víst að það framkalli hrifningu hjá þeim kjósendum borgarinnar sem eru á vinnumarkaði og vilja halda í atvinnuöryggi sitt.

Vitanlega er sjálfsagt og eðlilegt að hagræða í rekstri en þær hagræðingar þurfa að skila einhverju. Það er lítið vit í að segja upp fólki og endurráða síðan hluta þess aftur af því uppsagnirnar voru ekki ígrundaðar nægilega vel eða fara að útvista verkefnum með kostnaði sem gerir fyrirhugaðan sparnað að engu.

Meirihlutinn virðist vera búinn að fá nokkuð stóran hóp Reykvíkinga upp á móti sér, þótt hann hafi ekki verið lengi við stjórnvölinn. Það eru ekki bara uppsagnahrinurnar sem hafa kallað á harðar gagnrýnisraddir heldur einnig hagræðingahugmyndir varðandi bókasöfn borgarinnar. Eins og frægt er orðið lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar fram tillögu á fundi menningarráðs um að farið yrði yfir rekstur Borgarbókasafnsins og athugað hvort hægt væri að nýta fjármuni þess á betri hátt. Samkvæmt tillögunni átti að skoða hvort mögulegt væri að veita betri þjónustu með færri rekstrareiningum. Ekki er hægt að skilja það öðruvísi en að fækka ætti útibúum.

Tillagan vakti gremju og reiði meðal þeirra sem vilja standa vörð um hin mikilvægu bókasöfn okkar. Ýmsir borgarfulltrúar meirihlutans hlupu samstundis í vörn fyrir tillögu sem virtist vera enn ein niðurskurðatillagan. Nei, nei, þetta er ekki niðurskurður, við erum að boða stórsókn, var útskýring þeirra.

Sú sem þetta skrifar hefur heyrt svipaðar skýringar áður. Hún hefur komið nokkuð víða við á atvinnumarkaði og meðal annars unnið hjá fyrirtækjum sem voru í fjárhagsbasli. Þá kom fyrir að boðað væri til starfsmannafundar og tilkynnt að nú ætti að stórefla reksturinn, það fæli í sér ýmsar hagræðingar, en aðalatriðið, sem allir þyrftu að hafa í huga, væri að fyrirtækið væri í stórsókn. Slík yfirlýsing fyllti reynslumikla starfsmenn tortryggni, þeir vissu að verið væri að undirbúa uppsagnir og þrengja að starfsaðstöðu þeirra. Þar höfðu þeir rétt fyrir sér.

Bókasafnstillaga meirihlutans hefur ekki enn fengið afgreiðslu. Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, hefur bent á að tillögur í ráðum og nefndum taki oft breytingum þegar þær komi til formlegrar umræðu. „Það er galið að fjölmiðlar fjalli á þennan hátt um mál sem er í raun varla til,“ bætti hún við.

Nei, það er ekki galið. Fólk sá tillögu með hugmyndum sem því misbauð og lét rækilega í sér heyra. Tillögur geta vissulega tekið breytingum á hinum ýmsu stigum en það er alltaf betra að einhver heil brú sé í þeim strax á hugmyndastiginu. Það er ekki skynsamlegt, hvorki í borgarstjórn né annars staðar, að setja fram hvaða rugl sem er og laga það svo bara eftir á, eins og ekkert sé.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að tillagan hafi verið óheppilega orðuð, ekki standi til að loka bókasöfnum. Það eru góðar fréttir. Borgarbúar geta túlkað þau orð sem loforð frá borgarstjóra.

Meirihlutinn flokkar það vonandi líka sem óheppilegt orðalag að í bókasafnstillögunni standi að kanna skuli kostnað „á hvern gest og hvert útlán“. Sú hugmynd lýsir fullkomnu skilningsleysi á hlutverki bókasafna og ber vott um menningarsnautt hugarfar. Bókasafn á ekki að vera peningamaskína og gestir bókasafna eiga ekki að vera gangandi tekjulind. Það er ískyggilegt ef viðhorf borgaryfirvalda er að ef ekkert sé á gestunum að græða þá megi þeir éta það sem úti frýs.

Meirihlutinn hefur verið sakaður um að vera mannfjandsamlegur, hatast við menningu og vera eyðingarafl. Það er miskunnarlaus dómur sem meirihlutinn hlýtur að kveinka sér undan.

Nú hefur þessi sami meirihluti tækifæri til að sýna að hann sé menningarlega sinnaður og virði mikilvægi bókasafna borgarinnar og vilji hlúa að þeim. Vænleg leið til þess er að kasta vanhugsuðum tillögum á haugana.