Eyjan

Orðið á götunni: Flott uppgjör hjá Arion – samt er bankastjórinn með ótímabært nöldur og væl

Mynd

Stjórnendur helstu fyrirtækja landsins þurfa að hætta að vorkenna sér og fyrirtækjunum sem þeir eru í forsvari fyrir og horfa fram á veginn. Það er einnig orðið hvimleitt hve mikill skætingur í garð ríkisstjórnarinnar heyrist jafnan frá þeim. Það er alveg nóg að helstu fyrirtæki landsins borgi megnið af rekstri Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins sem eru opinberlega höfuðandstæðingar núverandi ríkisstjórnar og fórna með því trúverðugleika sínum að óþörfu.

Orðið á götunni er að Arionbanki gangi mjög vel og að Benedikt Gíslason, bankastjóri, standi sig vel sem forystumaður bankans. Það er fyrir neðan virðingu hans að koma fram í fjölmiðlum með nöldurtón og kvartanir yfir því að bankaskattur hafi verið hækkaður lítillega. Arionbanki hagnaðist eftir skatta í fyrra um 30,6 milljarða króna, sem jafngildir 15% arðsemi, og greiddi hluthöfum sínum rúma 15 milljarða í arð sem er eðlilegt miðað við svo góðu afkomu. Allt gekk það upp þrátt fyrir þá skatta sem bankinn greiddi þá. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2026 nam 8,7 milljörðum króna en var 8,2 milljarðar í fyrra.

Vísir skýrði frá þessari afkomu í vikunni og sagði í fyrirsögn að menn hafi séð ástæðu til að „hnýta“ í ríkisstjórnina. Benedikt veit manna best að það tekur á að ná hallalausum fjárlögum eftir að fyrri ríkisstjórn hefur rekið ríkið á yfirdrætti í nærfellt áratug. Þá er ekkert við það að athuga þó bankarnir, sem allir ganga vel og hafa skilað 100 milljörðum í hagnað á ári, leggi enn meira af mörkum. Það á ekki að leiða til þess að „hnýtt“ sé í ríkisstjórnina sem hefur forystu um að ná niður verðbólgu í landinu sem allir eru sammála um að sé öllum til óþurftar.

Bankarnir eru grunaðir um að velta umræddum bankaskatti út í verðlagið með því að hækka tekjur sínar og auka gjöld á viðskiptavini til að mæta þessu. Vitanlega er ekki ætlast til þess. Nú er mikilvægt að yfirvöld fylgist vel með hvernig bankarnir bregðast við hækkun bankaskatts. Samkeppniseftirlitið og Fjármálaeftirlitið verða að vera vel á verði og halda vöku sinni ef bankarnir ætla að láta almenning og fyrirtæki bera hækkunina. Það er ekki ætlunin og þannig næst verðbólgan ekki niður.

Orðið á götunni er að eftir því sé tekið þegar forstjórar stórfyrirtækja, eins og bankanna, halda uppi óvæginni gagnrýni á ríkisstjórnina. Þeir ættu frekar að sjá sóma sinn í að styðja við mikilvæg verkefni stjórnarinnar til að ná tökum á ríkisfjármálum sem hafa því miður verið látin dankast um árabil. Loksins núna er komin ríkisstjórn sem hefur metnað til að ná fram hallalausum fjárlögum og sýna aðhald í opinberum rekstri sem skort hefur á. Það hefur ekki verið ríkisvaldinu til sóma að láta yfirdráttarrekstur viðgangast árum saman.

Það að hækka bankaskatt er eðlilegt við núverandi aðstæður og ekki „skammsýn ráðstöfun“ eins og bankastjóri Arionbanka hélt fram við fjölmiðla í liðinni viku.

Orðið á götunni er að Arionbanki sé glæsilegt fyrirtæki sem þurfi ekki að láta draga sig niður á nöldurplan Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins.