fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Verður Ari Edwald borgarstjóraefni minnihlutans?

Eyjan
Sunnudaginn 3. maí 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Minnihlutaflokkarnir á Alþingi, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn, eru líklegir til að vilja vinna saman nái þeir meirihluta í komandi borgarstjórnarkosningum. Ólíklegt er að aðrir en Miðflokkur og Framsókn vilji samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.

Verði niðurstaða kosninganna sú að Sjálfstæðisflokkur fái sjö borgarfulltrúa, Miðflokkur fjóra menn og Framsókn einn, þá næðu þeir 12 fulltrúa meirihluta.

Orðið á götunni er að komi sú staða upp að loknum kosningum, má fastlega gera ráð fyrir því að Miðflokkurinn yrði í þeirri stöðu að krefjast embættis borgarstjóra fyrir oddvita sinn, Ara Edwald. Sjálfstæðisflokkurinn gæti ekki neitað því enda yrði það eina leið hans til að komast í meirihluta í borginni eftir 16 ára útlegð. Ekki þarf að gera ráð fyrir því að aðrir flokkar en þessir tveir gætu hugsað sér samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.

Ef Ari Edwald yrði borgarstjóri yrði það enn eitt áfallið fyrir Hildi Björnsdóttur sem virðist þrá þetta embætti. En athyglin myndi beinast enn frekar að Ara sem því miður á ekki flekklausan feril að baki þótt það virðist ekki trufla hann mikið í sókn sinni eftir völdum og áhrifum. Ástæðulaust er að tíunda frekar vandræðamál sem Ari hefur komið sér í, ekki síst vegna ásakana Vitalíu Lazareva um kynferðislegt ofbeldi. Umræða um það tröllreið samfélaginu á sínum tíma þar sem klögumálin gengu á víxl. Fleira hefur komið fram sem eykur ekki trúverðugleika Ara.

Orðið á götunni er að varla taki því að fjalla um Framsókn sem hefur algerlega spilað stöðunni í borginni út úr höndum sér en oddviti flokksins plottaði yfir sig og missti undan sér stól borgarstjórans. Engu að síður gæti Einar Þorsteinsson verið í lykilstöðu við myndun meirihluta nái hann kjöri.

Veikleikar einkenna ýmsa af væntanlegum borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Suma þeirra skortir trúverðugleika. Einkamál Bjarna Guðjónssonar standa nú illa, Brynjar Níelsson færir engan ferskleika inn í hópinn, „gamalt vín á nýjum belgjum,“ og Rúnar Freyr Gíslason hefur valið að koma fram í fjölmiðlum og fjalla opinskátt um fíknivanda sinn og ásakanir um ofbeldi gagnvart konum. Vandi Hildar oddvita er hins vegar sá að hún hefur ekki getað haldið saman og stjórnað sex manna hópi borgarfulltrúa flokksins og er því ólíkleg til að geta stjórnað borginni. Fyrir fjórum árum leiddi hún lista flokksins, missti 2 borgarfulltrúa og fór með fylgi Sjálfstæðisflokksins niður í 24,5 prósent – hið minnsta í sögunni!

Orðið á götunni er mjög æskilegt sé að valdhafar í lang stærsta sveitarfélagi landsins, höfuðborginni, séu flekklausir og sómakærir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“

Spyr hvers vegna SA og Viðskiptaráð hafi kúvent – „Ekki vegna heildarhagsmuna atvinnulífsins í landinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins

Þorsteinn Pálsson skrifar: Orsök kúvendingar í Húsi atvinnulífsins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt

Orðið á götunni: Hlýtur að styttast í nýjan ritstjóra Morgunblaðsins – ástandið orðið vandræðalegt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flóttinn úr Sjálfstæðisflokknum

Sigmundur Ernir skrifar: Flóttinn úr Sjálfstæðisflokknum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Orðræðan hefur pólaríserast – söluvænar fyrirsagnir á kostnað innihalds

Halla Hrund Logadóttir: Orðræðan hefur pólaríserast – söluvænar fyrirsagnir á kostnað innihalds