fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Eyjan

Katrín Káradóttir skrifar: Soroptimistar taka þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna því það skiptir máli

Eyjan
Föstudaginn 6. mars 2026 07:37

Katrín Káradóttir. Mynd: Aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars er jafn mikilvægur nú sem áður. Dagurinn er mikilvægur um allan heim og við, Soroptimistar notum tækifærið og tölum einni röddu fyrir réttindum, öryggi og framtíð kvenna og stúlkna. Þessi dagur er alþjóðlegur vettvangur til að fagna framförum en einnig vettvangur til að draga fram viðvarandi ójafnrétti og knýja fram breytingar í þágu kvenna og stúlkna.

Við Soroptimistar vitum að kynjajafnrétti er bæði áfangi sem vert er að fagna og markmið sem við verðum áfram að vinna að. Konur munu halda áfram að móta samfélög, leiða nýsköpun, byggja upp frið og efla réttlæti. Áherslur okkar hvetja okkur til að fagna og finna innblástur af þeim ótrúlega árangri sem konur ná á hverjum degi. Jafnframt minnir það okkur á að áframhaldandi árangur krefst sýnileika og sameiginlegrar skuldbindingar.

Árið 2026 leggur Soroptimistasamband Evrópu áherslu á slagorðið „Why it matters“ – konur knýja framfarir. Það skiptir meira máli nú en nokkur sinni fyrr að Soroptimistar séu rödd kvenréttinda, upplýst og trúverðug á tímum þegar jafnrétti á undir högg að sækja. Þótt margt hafi áunnist er enn verk að vinna og Soroptimistar munu áfram vera í fararbroddi með því að magna sameiginlega rödd, fagna árangri okkar og einbeita okkur að því að skapa framtíð þar sem jafnrétti er fyrir alla.

Með víðtækri þátttöku sem tengist 8. mars staðfestum við að jafnrétti verður aðeins náð þegar við stöndum saman sem mannkyn og höldum áfram að knýja saman á um raunverulegar sjálfbærar aðgerðir.

20 Soroptimistaklúbbar um allt land munu á margvíslegan hátt minna á Alþjóðlegan baráttudag kvenna.

Ég hvet lesendur til að kynna sér nánar fyrir hvað Soroptimistar standa fyrir á vefnum: soroptimist.is

Höfundur er 1.varaforseti Soroptimistasambands Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Viðhaldsframkvæmdir í fjöleignarhúsum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Þurfum meiri strandsiglingar – fellum bara niður ETS gjöldin

Eyjólfur Ármannsson: Þurfum meiri strandsiglingar – fellum bara niður ETS gjöldin
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann