fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Eyjan

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 22. nóvember 2024 11:34

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klappir grænar lausnir,  sem er skráð á Nasdaq, First North-markaðinn, hélt kynningu fyrir fjárfesta á dögunum þar sem kynnt var árshlutauppgjör félagsins og framtíðarsýn félagsins til næstu ára. Hugbúnaðarlausnir Klappir gera fyrirtækjum kleift að uppfylla kröfur um upplýsingagjöf í sjálfbærni með einföldum og skilvirkum hætti. Með sjálfvirkri gagnasöfnun og greiningu stuðlar hugbúnaðarlausn Klappa að skilvirkari vinnslu á upplýsingum um frammistöðu í sjálfbærni og gagnaskilum til hagaðila. Klappir dreifa hugbúnaðinum í gegnum net samstarfsaðila sem nær til um 25 landa.

Heildartekjur Klappa námu 297,4 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2024. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (EBITDA) nam 58 milljónum króna, samanborið við 43,6  milljónir á sama tíma árið áður. Rekstrarhagnaður var 31,6 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 6,1 milljónir á sama tíma í fyrra að því er fram kom á kynningunni. 

Áskriftartekjur jukust um 21,8%

„Fyrri hluti ársins var mjög sterkur hjá félaginu og við höfum styrkt stöðu okkar enn frekar á mörkuðum bæði heima og erlendis. Áskriftartekjur jukust um 21,8%. Þessi aukning er að hluta til vegna grunnáskrifta sem vænst er til að skili sér inn í auknum tekjum á komandi mánuðum,segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa. 

„Vöxtur okkar erlendis skýrist að stórum hluta af því að fyrirtæki sem hingað til hafa gert kolefnisbókhald í eigin Excel tólum eru að flytja sig yfir í stafræna tækni Klappa. Fyrirtækin vilja mæta flóknu sjálfbærniregluverki með öflugri tækni sem dregur úr áhættu, bætir skilvirkni og lækkar kostnað,segir Jón Ágúst.

„Með Ísland sem fyrirmynd, þá erum við að byggja upp samskonar gagnainnviði fyrir sjálfbærnigögn í öðrum löndum. Sem dæmi má nefna, að við ásamt öðrum, erum að gera gagnainnviði fyrir yfir tvö hundruð sjálfstæðar hitaveitur í Danmörku. Annað verkefni, sem við erum einnig mjög stolt af, er að við erum að aðlaga upplýsingagjöf um úrgangsmeðhöndlun með sama hætti og við unnum með fyrirtækjunum hér heima. Þetta eru bara tvö dæmi af þeim fjölmörgu verkefnum sem við erum að vinna erlendis. Velvilji íslenskra fyrirtækja á undanförnum tíu árum og stuðningur hins opinbera hefur gert okkur kleift að þróa hugbúnaðarlausn sem á sér enga líka í heiminum í dag.

Stefna á tvíhliða skráningu

Jón Ágúst segist reikna með að markaður fyrir hugbúnaðarlausn Klappa stækki umtalsvert á komandi árum því verið sé að innleiða ný lög og reglugerðir varðandi upplýsingagjöf í sjálfbærni í fjölmörgum löndum. ,,Við höfum því lagt mikla áherslu á að undirbúa okkur fyrir hraðan vöxt á komandi árum. Við höfum m.a. verið að aðlaga áskriftarleiðirnar og sjálfvirknivæða ferla sem snúa að markaðssetningu, sölu, þjónustu, vöruþróun og dreifingu.

„Þó svo að íslensk fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir verði alltaf í fyrirrúmi, þá viljum við styrkja okkur enn frekar erlendis í gegnum Klappir Nordic, dótturfélag okkar í Danmörku. Við erum meðal annars að skoða tvíhliða skráningu í einu af Norðurlöndunum en það myndi staðsetja okkur betur í Evrópu og hjálpa okkur við að nálgast markaði utan Evrópu. Slík skráning er einnig hugsuð fyrir fjárfesta, þar sem hlutabréf Klappa væru á stærri markaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi