fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Eyjan

Landsvirkjun hagnaðist um 15,6 milljarða á fyrri hluta ársins – raforkukerfið fullnýtt

Eyjan
Mánudaginn 28. ágúst 2023 14:19

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsvirkjun hagnaðist um114 milljónir Bandaríkjadala, eða 15,6 milljarða króna, á fyrri hluta ársins. Er þetta nokkru minni hagnaður en í fyrra en þar kemur til að hagnaður Landsnets sem selt var á árinu skilaði hluta af niðurstöðu ársins.

Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 196 milljónum USD (26,8 ma.kr.), en var 154,3 milljónir USD á sama tímabili árið áður og hækkar því um 27,0 prósent þrátt fyrir mjög góða afkomu á síðasta ári.

Rekstrartekjur námu 331,8 milljónum USD (45,5 ma.kr.) og hækka um 36,8 milljónir USD (12,5 prósent) frá sama tímabili á árinu áður.

Nettó skuldir Landsvirkjunar lækkuðu um 182,4 milljónir USD (25 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok júní 665,7 milljónir USD (91,2 ma.kr.).

Handbært fé frá rekstri nam 248,8 milljónum USD (34,1 ma.kr.), sem er 29,7 prósent hækkun frá sama tímabili árið áður.

Á öðrum ársfjórðungi var 125 milljóna USD lánalína endurfjármögnuð til þriggja ára. Kjör lánalínunnar eru hagstæð, eða 45 punktar yfir SOFR millibankavöxtum.

Matsfyrirtækið S&P Global Ratings breytti horfum á lánshæfi Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar og staðfesti BBB+ lánshæfiseinkunn fyrirtækisins.

Hörður Arnarson, forstjóri:

Rekstur Landsvirkjunar gengur áfram vel. Hagnaður af grunnrekstri jókst um 27 prósent frá sama tímabili ársins 2022, sem þó var metár í sögu fyrirtækisins. Rekstrartekjur jukust um 12,5 prósent frá fyrri helmingi ársins 2022. Munar þar mestu um tekjur vegna innleystra áhættuvarna, auk þess sem raforkusala var áfram mikil, en á móti kemur verðlækkun á þeim mörkuðum sem raforkuverð til stórnotenda er að hluta til tengt við. Á sama tíma lækkaði rekstrar- og viðhaldskostnaður um 6 prósent frá fyrra ári.

Fjármunamyndun var sterk á tímabilinu, en handbært fé frá rekstri jókst um 29,7 prósent og nam 34 milljörðum króna.

Rekstur aflstöðva gekk vel á fyrri helmingi ársins, en á fyrsta fjórðungi þurfti þó að takmarka afhendingu á skerðanlegri orku til gagnavera og fiskmjölsframleiðenda, þar sem raforkukerfið er nú rekið nærri hámarks afkastagetu.

Eins og við hjá Landsvirkjun höfum ítrekað bent á síðustu ár og misseri ríður á að byggja upp frekari raforkuvinnslu til að uppfylla þá augljósu orkuþörf sem er í samfélaginu vegna orkuskipta og almenns vaxtar í atvinnulífinu. Landsvirkjun vinnur nú hörðum höndum að því að afla tilskilinna leyfa svo fyrirtækinu sé unnt að mæta þessum sjálfsögðu kröfum samfélags og stefnu stjórnvalda.“

Skuldir lækka enn

Fjármunamyndun fyrirtækisins (handbært fé frá rekstri) var sterk á tímabilinu og nam 249 milljónum dollara, sem er 57 milljón dollurum meira en á sama tímabili í fyrra. Nettó skuldir (vaxtaberandi skuldir að frádregnu handbæru fé) hafa lækkað um 182 milljónir Bandaríkjadala frá áramótum og um 274 milljón dollara frá sama tíma í fyrra.

Handbært fé nam 158 milljónum dollara í lok júní 2023 og hefur hækkað um 7 milljónir frá áramótum.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir a eftirspurn eftir raforku sé áfram það mikil að raforkukerfið sé fullselt. Unnið sé að því að afla tilskilinna leyfa fyrir frekari uppbyggingu orkuvinnslu. Þessi mikla eftirspurn hafi vissulega jákvæð áhrif á horfur í rekstri, en afkoma muni einnig halda áfram að litast af verðþróun á alþjóðlegum hrávöru- og orkumörkuðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst

Orðið á götunni: Halla Hrund flýgur á toppinn – skjálftavirkni eykst
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
Eyjan
Fyrir 1 viku

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar