fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Sveinbjörn til Fossa fjárfestingarbanka

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. mars 2023 16:02

Sveinbjörn Sveinbjörnsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar Fossa fjárfestingarbanka. Hann mun leiða reynslumikið teymi Fossa í áframhaldandi uppbyggingu eignastýringar og fjárfestingaráðgjafar til viðskiptavina bankans, eins og segir í tilkynningu.

Sveinbjörn kemur til Fossa frá Íslandsbanka þar sem hann hefur starfað síðastliðin 20 ár og er því með mjög víðtæka reynslu af fjármálamarkaði og þjónustu við viðskiptavini. Síðastliðin 14 ár hefur hann unnið hjá eignastýringu Íslandsbanka, fyrst sem viðskiptastjóri í Einkabankaþjónustu og sem forstöðumaður frá 2013. Hann tók svo við sem forstöðumaður eignastýringar Íslandsbanka 2018. Ráðning Sveinbjörns er liður í yfirlýstri stefnu Fossa fjárfestingarbanka að leggja áherslu á eignastýringu í vaxtaráformum bankans á komandi árum. Sveinbjörn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með próf í verðbréfaviðskiptum.

„Undanfarin ár höfum við í Fossum fjárfestingarbanka lagt grunninn að traustri og fjölbreyttri fjármálaþjónustu fyrir viðskiptavini okkar. Í þeirri vinnu skiptir miklu máli að hafa reynslumikið fólk í teyminu sem hefur framúrskarandi þekkingu á fjármálamarkaði. Því er það mikið ánægjuefni fyrir okkur í Fossum að Sveinbjörn gangi til liðs við okkur þar sem hann tekur við keflinu af Önnu Þorbjörgu sem hefur lagt grunninn að eignastýringu Fossa. Það er spennandi tækifæri fyrir okkur að setja á laggirnar nýtt lánasvið Fossa á komandi misserum samhliða áframhaldandi þróun á erlendu vöruframboði. Þessar skipulagsbreytingar eru til þess fallnar að nýta þau tækifæri sem nýtt starfsleyfi og aukin umsvif skapa ásamt því að styðja við markmið okkar um vöxt á lykilsviðum bankans,“ segir Haraldur Þórðarson forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.

Sveinbjörn hefur störf hjá Fossum í sumar. Anna Þorbjörg Jónsdóttir sem stýrt hefur uppbyggingu eignastýringar Fossa til þessa mun söðla um og taka við stöðu framkvæmdastjóra nýs lánasviðs Fossa. Hún mun að auki áfram leiða þróun á alþjóðlegu vöruframboði bankans með áherslu á erlenda sjóði.

Anna Þorbjörg er hagfræðingur og fjármálastærðfræðingur með meistarapróf frá UCLA og USC. Hún býr yfir víðtækri alþjóðlegri reynslu á fjármálamarkaði. Hún var einn stofnenda World Financial Desk LLC, hátæknifjármálafyrirtækis með aðsetur í New York. Anna Þorbjörg hefur starfað hjá Fossum fjárfestingarbanka síðan 2016 og byggt upp erlent vöruframboð og eignastýringarsvið. Hún hefur starfað í framkvæmdastjórn bankans síðastliðin þrjú ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Í gær

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi