fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Eyjan

Heiðrún til Fossa fjárfestingarbanka

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 1. mars 2023 08:55

Heiðrún Haraldsdóttir Mynd: Aldís Pálsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fossar fjárfestingarbanki hafa ráðið til sín Heiðrúnu Haraldsdóttur sem forstöðumann fjármála- og rekstrarsviðs. Kemur þetta fram í tilkynningu.

Heiðrún er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með MSc í fjármálum fyrirtækja og  með yfir 20 ára reynslu af fjármálastarfsemi. Hún kemur til Fossa frá Arion banka þar sem hún starfaði sem rekstrarstjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs. Áður starfaði hún á fjármálasviði Arion banka, meðal annars í samstæðuuppgjöri og hagdeild. Heiðrún hefur einnig starfað sem sérfræðingur hjá Íslandsbanka, sem rekstrarstjóri hjá Senu og fjármálastjóri Hér & Nú auglýsingastofu. 

Fossar voru stofnaðir árið 2015 og þjónusta innlenda og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Starfsmenn Fossa eru reyndir sérfræðingar með viðamikla þekkingu á bæði innlendum og erlendum fjármálamörkuðum. Markmið Fossa er að skila viðskiptavinum árangri með því að veita framúrskarandi fjármálaþjónustu. Sjálfbærnisjónarmið hafa ávallt verið höfð að leiðarljósi í starfsháttum Fossa. Það er markmið Fossa að sýna ríka ábyrgð í samfélagsábyrgð og sjálfbærni, bæði í eigin starfsemi og í gegnum víðtæk áhrif starfseminnar á viðskiptavini og aðra haghafa. Þannig hafa Fossar til dæmis verið brautryðjandi í umsjón með útgáfu grænna skuldabréfa á Íslandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“

Þurfti að stilla til friðar eftir háðsglósur á Alþingi þar sem þingmaður móðgaðist og meirihlutinn flissaði – „Bíddu, hvar hefurðu verið?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu

Diljá Mist Einarsdóttir: Trump hefur sértrúarsöfnuð í kringum sig – Ísland hefur sérstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Heimur í höndum skemanns
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum

Áslaug Arna tekur sér leyfi á þingi til að elta langþráðan draum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn

Steinunn Ólína skrifar: Óttaslegnir menn