fbpx
Miðvikudagur 29.mars 2023
Eyjan

Þóra forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 7. febrúar 2023 16:01

Þóra Arnórsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun.

Þóra er þekkt fjölmiðla- og heimildarmyndagerðarkona og hefur starfað við frétta- og dagskrárgerð í um aldarfjórðung. Hún hefur unnið bæði í útvarpi og sjónvarpi, hjá Stöð 2 og RÚV, síðustu ár sem ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks. Í gær var greint frá því að Þóra hefði sagt upp störfum hjá RÚV eftir 25 ára starf.

Þóra Arnórsdóttir hættir hjá RÚV eftir 25 ára starf

Þóra var einnig stundakennari við Háskóla Íslands um árabil þar sem hún kenndi alþjóðastjórnmál. Hún hefur átt farsælan feril og hlotið mörg verðlaun og tilnefningar fyrir störf sín í gegnum tíðina. Þóra er með B.A. gráðu í heimspeki frá HÍ og Háskólanum í Genúa á Ítalíu og M.A. gráðu í alþjóðastjórnmálum og þróunarhagfræði frá Johns Hopkins SAIS, Bologna og Washington DC.

Það er ánægjulegt fyrir Landsvirkjun að fá Þóru til liðs við fyrirtækið. Reynsla hennar og þekking mun koma sér vel í þeim áhugaverðu verkefnum og framkvæmdum sem fram undan eru. Nú sem endranær leggur Landsvirkjun mikla áherslu á samvinnu og góð samskipti við almenning, aðra hagaðila og nærsamfélög, samhliða innri upplýsingagjöf til starfsfólks. Það er mikilvægt að hafa öflugan einstakling til að leiða slík verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn

Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir efnhagslífið vera sjóðheitt og að Seðlabankinn verði að bregðast við

Segir efnhagslífið vera sjóðheitt og að Seðlabankinn verði að bregðast við
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Furða sig á ákvörðun sveitarstjórnar um að kaupa gamalt flugvélarflak

Furða sig á ákvörðun sveitarstjórnar um að kaupa gamalt flugvélarflak
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þessir þingmenn hafa eytt mestu skattfé í ferðalög – Bróðir seðlabankastjóra trónir á toppnum

Þessir þingmenn hafa eytt mestu skattfé í ferðalög – Bróðir seðlabankastjóra trónir á toppnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Varaþingmaður VG segir sig úr flokknum eftir að frumvarpið umdeilda flaug í gegn

Varaþingmaður VG segir sig úr flokknum eftir að frumvarpið umdeilda flaug í gegn