fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Hvíta húsið og Sahara í samstarf til að bæta og auka þjónustu við viðskiptavini

Eyjan
Fimmtudaginn 5. október 2023 12:01

Sigurður Svansson, framkvæmdastjóri Sahara, og Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auglýsingastofan Hvíta húsið og stafræna markaðsstofan Sahara hafa gert með sér samkomulag um samstarf í þeim tilgangi að geta boðið viðskiptavinum sínum fjölþætta þjónustu í markaðsmálum á breiðum grunni.

Hvíta húsið hefur um langt árabil verið í fremstu röð íslenskra auglýsingastofa þegar kemur að skilvirkri og hugmyndaríkri sköpun, stefnumótun, hönnun og auglýsingagerð. Enn fremur veitir Hvíta húsið viðskiptavinum sínum víðtæka þjónustu og margvíslega ráðgjöf varðandi birtingar og samfélagsmiðla.

Sahara er stafræn markaðsstofa með starfsstöðvar hér á landi og í Bandaríkjunum og er leiðandi í markaðssetningu og söluferlum á stafræna sviðinu. Stofan þróar lausnir fyrir fyrirtæki í tengslum við markaðssetningu á stafrænum miðlum og sérhæfir sig í auglýsingastjórnun á samfélagsmiðlum, leitarvélum (PPC), leitarvélabestun (SEO) og efnisframleiðslu.

Sigurður Svansson, framkvæmdastjóri Sahara, segir að samstarfið við Hvíta húsið muni hafa í för með sér spennandi tækifæri fyrir báðar stofurnar og viðskiptavini þeirra. „Þetta skref er stigið í takt við stefnumarkandi vegferð sem við erum á og við erum þess fullviss að samlegðaráhrif sem af samstarfinu leiðir eru jákvæð,“ segir hann.

„Með samstarfi Hvíta hússins við Sahara munu viðskiptavinir okkar njóta góðs af þeirri sérþekkingu og reynslu sem Sahara byggir á og skila þeim þannig nýjum tækifærum og auknum árangri í sínu markaðsstarfi,“ segir Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir