fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

„Glæpsamlegt áhlaup á varnarlaus heimili“

Eyjan
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 14:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagsmunasamtök heimilanna segja Seðlabanka Íslands hafa gert „glæpsamlegt áhlaup á varnarlaus heimili“ með ákvörðun sinni um stýrivaxtahækkun sem var kynnt í morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir:

„Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla harðlega þeirri aðför að heimilum landsins sem Seðlabankinn stendur fyrir.

Á einu ári hefur Seðlabankinn aukið mánaðarlega greiðslubyrði heimilanna um 130-200.000 kr. í hverjum mánuði og það er augljóst öllu sæmilega skynsömu fólki, að heimili með meðaltekjur eða minna munu ekki standa undir þessum álögum til lengdar.

Það má líka aðgerðum Seðlabankans við það að kveikja í húsi til að losna við köngulóarvef.“

Neyðarlegt að heyra gaslýsingu Seðlabankastjóra

Hagsmunasamtök heimilanna segja að allar aðgerðir Seðlabankans séu verðbólguhvetjandi „því hvert fara ört hækkandi álögur á fyrirtæki, annað en út í verðlagið? Og hvert fer aukinn húsnæðiskostnaður heimilanna annað en beint inn í húsnæðislið vísitölu neysluverðs?“

Fjármagn heimilanna fari nú inn í „troðfullar hirslur“ bankanna sem fini eins og púkinn á fjósbitanum. Í bönkunum sé nú veisla.

Eins sé vandræðalegt að hlusta á Seðlabankastjóra gaslýsa þjóðina þegar hann reyni að sannfæra fólk um að þessar aðgerðir séu landanum til góðs og séu til þess fallnar til að verja kjarabætur frá því að brenna á báli verðbólgunnar. Í reynd sé verið að taka pening frá fólkinu i landinu og færa hann bönkunum á silfurfati.

„Skynsemin er víst ekki meiri en Guð gefur og maður skyldi ætla að nóg væri af henni innan veggja Seðlabankans, en þá ber að líta til þess hversu einsleitur hópurinn sem skipar peningastefnunefndina er. Þau koma öll úr fjármálageiranum og setja hagsmuni hans alltaf í forgang, eins og sjá má á vaxtahækkunum síðasta árs.“

Peningastefnunefnd með kjör sem ekki bjóðast öllum

Fólkið í peningastefnunefnd sé með um 2 milljónir í laun á mánuði og deili því ekki kjörum með fólkinu í landinu. Peningastefnunefnd sé ekki að koma sér sjálfum illa heldur „alla hina“.

„Það þarf ekki að skilja allt eftir í rjúkandi rúst til að ná tökum á verðbólgunni. Hún er vissulega slæm en hún er ekki svona slæm. Aðgerðir Seðlabankans eru u.þ.b. sexfalt verri en verðbólgan sjálf. Það eru aðgerðir Seðlabankans sem eru að koma heimilum landsins á vonarvöl, ekki verðbólgan.“

Ef svo fari sem nú horfir munu þúsunundir tapa heimilum sínum á næstu árum. Heimilin séu nú að bjarga sér fyrir horn með skuldbreytingum, fyrstingum, yfirdráttum og notkun séreignasparnaðar.

Fólk muni enda með að verða verra statt en áður, með hærri skuldir. Yfirdrætti í botni og engan séreignasparnað eftir að hafa tapað honum í gin bankanna.

Þetta er „skjólið“ sem verið er að neyða fólk til að flýja í

Í tilkynningu segir enn fremur:

„Í dag tekur það einungis 3 ár og 7 mánuði fyrir „hina lágu“ afborgun verðtryggðs láns að ná afborgun óverðtryggðs láns og þá þegar verður höfuðstóll 40 milljón króna verðtryggðs láns til 25 ára, kominn upp í 50,1 milljón. Eftir 10 ár verður hann 68 milljónir og mánaðarleg afborgun 470.000. Eftir 15 ár verður lánið komið upp í 77 milljónir og afborgunin 743.000. Afborganir hækka svo áfram þegar höfuðstóllinn tekur loksins að lækka og þegar hann verður loksins aftur 40 milljónir eftir tæp 23 ár verður mánaðarleg afborgun 1,5 milljónir. Lokagreiðsla lánsins verður 1.853.000 kr. Á sama tíma verður afborgun óverðtryggða lánsins með 7,5% vexti, enn þá sú sama og í upphafi, eða 263.000 kr. Þessar tölur eru úr lánareiknivél Landsbankans.

Þetta er „skjólið“ sem verið er að neyða fólk til að flýja í.

Hagsmunasamtök heimilanna vilja beina því til ráðherra ríkisstjórnar Íslands að þau axli ábyrgð á því að leyfa embættismönnum, sem þau hafa bæði ráðið og skipað, að rústa efnahag heimilanna þannig að þau beri þess aldrei bætur.

Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla því harðlega að ókjörnir embættismenn hafi þessi völd. Með fullri virðingu fyrir sjálfstæði þeirra í störfum að öðru leyti, þá hafa þeir núna gengið of langt og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur verður að stöðva peningastefnunefnd Seðlabankans áður en heimilin brenna til grunna, ekki á verðbólgubáli, heldur bálinu sem Peningastefnunefndin kveikti í og hellir í sífellu olíu á.

15.000 fjölskyldur misstu heimili sín eftir síðasta hrun. Nú er líklegt að þegar snjóboltaáhrif verðtryggingarinnar koma í ljós innan fárra ára, verði skaðinn mun meiri en þá.

Aðförin gegn heimilunum er glæpsamleg og Hagsmunasamtök heimilanna lýsa fullri ábyrgð á hendur Seðlabanka Íslands og ríkisstjórninni, grípi hún ekki til tafarlausra aðgerða til varnar heimilum landsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“

Hallgrímur vandar Katrínu ekki kveðjurnar- „Er einhver munur á VG og XD?“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?