fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Eyjan

Brimborg reisir stærsta sólarorkuver á Íslandi og fyrsta í Reykjavík fyrir sýningarsal Polestar rafbíla

Eyjan
Þriðjudaginn 29. mars 2022 18:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brimborg mun í vor opna nýjan Polestar Destination sýningarsal fyrir Polestar rafbíla og á þaki hans verður reist stærsta sólarorkuver á Íslandi og það fyrsta í Reykjavík og mun orkuverið framleiða um 50% af orkuþörf sýningarsalarins í kWst á ársgrundvelli. Í fréttatilkynningu kemur fram að sýningarsalurinn komi til með að opna í húsnæði á lóð Brimborgar við Bíldshöfða en húsnæðið hefur allt verið endurnýjað með það í huga að spara raforku m.a. með LED ljósum, ljósastýringu og orkunýtnum raftækjum.

Brimborg fyrst bíla- og atvinnutækjaumboða og fyrst ökutækjaleiga með sjálfbærniuppgjör

Brimborg er fyrst bíla- og atvinnutækjaumboða á Íslandi og fyrsta ökutækjaleigan á Íslandi að gefa út heildstætt sjálfbærniuppgjör og er þetta stóra vistskref í samræmi við umhverfisstefnu Brimborgar, Visthæf skref, sem innleidd var árið 2007 og er í samræmi við kjörorð félagsins, Öruggur staður til að vera á, sem kynnt var til sögunnar árið 2003.

Brimborg gengur lengra en önnur fyrirtæki á Íslandi og gefur út sjálfbærniuppgjör vegna rekstrarársins 2021 fyrir umfang 1 og 2 og umtalsverðan hluta umfangs 3 fyrir öll rekstrarsvið félagsins á öllum starfsstöðvum um allt land með ítarlegum upplýsingum um áhrif starfsemi sinnar á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti (UFS).

Brimborg með áherslu á orkusparnað og staðbundna orkuframleiðslu

Sjálfbærniuppgjörið upplýsir m.a. um umhverfisáhrif starfsemi Brimborgar og samkvæmt umhverfisstefnu félagsins, Visthæf skref, þá skal unnið skipulega að því að draga úr þessum áhrifum. Það gerir Brimborg nú og stígur enn eitt vistskrefið sem byggir á auknum orkusparnaði annars vegar og hins vegar virkjun sólarinnar til raforkuframleiðslu.

Orkuskiptin eru gríðarlega mikilvæg fyrir Íslendinga

Orkuskiptin eru gríðarlegt hagsmunamál fyrir Íslendinga og þar þurfa fyrirtæki að leggja sitt af mörkum enda ávinningur mikill af því að vinna markvist að orkuskiptum og auka hlutfall endurnýjanlegrar orku. Stór skref Brimborgar til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, nýta betur núverandi orku og með staðbundinni raforkuframleiðslu hafa margvísleg jákvæð áhrif og skapar fordæmi fyrir önnur fyrirtæki að fylgja í fótspor Brimborgar.

  • Sparnaður í raforkunotkun með LED ljósum, ljósastýringu, orkusparandi tækjum og öðrum aðgerðum gefur svigrúm til að nota raforkuna sem sparast í almenna kerfinu til orkuskipta og frestar þörf á nýjum virkjunum
  • Staðbundin framleiðsla með sólarorku gefur svigrúm til að nota raforkuna sem sparast í almenna kerfinu til orkuskipta og frestar þörf á nýjum virkjunum
  • Samdráttur í notkun á jarðefnaeldsneyti skapar jákvæð umhverfisáhrif því losun Brimborgar af koltvísýringsígildum (CO2í) minnkar sem hefur jákvæð loftslagsáhrif
  • Vistskref Brimborgar er framlag til orkuöryggis íslensku þjóðarinnar með raforkusparnaði, staðbundinni framleiðslu og með minni kaupum á jarðefnaeldsneyti
  • Minni notkun jarðefnaeldsneytis sparar erlendan gjaldeyri
  • Þegar ekki er lengur þörf á jarðefnaeldsneyti hætta erlendar verðsveiflur á olíuverði að hafa áhrif á verðbólgu á Íslandi sem er hagsmunamál fyrir heimilin auk þess sem íslenskt rafmagn sem orka á bíl heimilisins er ódýrara og verðlag stöðugra
  • Fjármunir sparast í rekstri Brimborgar sem stuðlar að lægra bílverði og meiri arðsemi félagsins

Brimborg fjárfesti yfir hálfan milljarð í sjálfbærniverkefnum árið 2021

Fjárfestingar í útrýmingu jarðefnaeldsneytis, auknum orkusparnaði og uppbyggingu sólarorkuvers er liður í fjárfestingum Brimborgar í sjálfbærni. Á árinu 2021 fjárfesti Brimborg fyir 520 milljónir í margvíslegum sjálfbærniverkefnum. Þar má nefna uppsetningu LED ljósa í fasteignum félagsins, uppsetningu fjölda hleðslustöðva á starfsstöðvum sínum, bæði til hæghleðslu (AC) og hraðhleðslu (DC) og til kaupa á bílum sem ganga fyrir rafmagni svo fátt eitt sé nefnt. Haldið verður áfram á sömu braut á árinu 2022.

Orkusparnaður og staðbundin orkuframleiðsla verndar náttúru með minni þörf á virkjunum

Mikil umræða hefur verið um nauðsyn þess að virkja meira en með átaki í orkusparnaði og staðbundinni orkuframleiðslu, t.d. frá sól eða vindi, er hægt að draga mjög úr virkjanaþörf. Ef öll fyrirtæki myndu fylgja í fótspor Brimborgar væri hægt að nota orkuna sem sparast til orkuskipta fyrir rafbíla og tengiltvinnbíla án þess að virkja meira.

Stærsta sólarorkuver á Íslandi og það fyrsta í Reykjavík verður ræst í vor

Sólarorkuframleiðsla á Íslandi er ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann enda Íslendingar gjarnir á að kvarta yfir sólarleysi. Við ítarlegan undirbúning Brimborgar að uppsetningu sólarorkuversins á þaki Polestar Destination sýningarsalarins kom á óvart hversu mikil raforkuframleiðslan er ef notuð er nýjasta tækni og rétt er staðið að málum.

Sólarsellur verða sífellt betri og nýting batnar stöðugt með nýrri tækni og verð þeirra fer lækkandi eftir því sem framleiðsla á sólarsellum eykst í heiminum. Uppsett afl sólarorkuvera á heimsvísu setti nýlega met þegar það fór yfir 1 TW. Evrópusambandið framleiðir nú um 3,6% af sinni raforku með sólarorku, og þar er Þýskaland í fararbroddi, og Bretland er með um 4,1% af sinni raforkuframleiðslu frá sólarorku.

Sólarorkuver nýta ekki eingöngu beina geisla sólar heldur einnig óbeina geislun, birtuna frá sólinni og þar kemur Ísland sterkt inn með sína löngu daga þar sem mögulegt er hluta úr ári að framleiða rafmagn nánast allan sólarhringinn. Auk þess kemur íslenski kuldinn, aldrei þessu vant, sér vel því á Íslandi eru engar líkur á að sólarsellurnar ofhitni með tilheyrandi orkutapi.

Við skoðun Brimborgar kom í ljós að sólarorka nýtist best í rekstur fyrirtækja frekar en heimili. Sólarorkuframleiðsla á þaki bygginga fyrirtækja er einstaklega hagkvæm því orkan nýtist beint í reksturinn þar sem raforkunotkun fyrirtækja fer nánast öll fram yfir daginn þegar birtu nýtur en því er öfugt farið á heimilum. Kvöld og næturframleiðslan er minni en dugar hluta úr ári til að halda næturlýsingu og lágmarkskerfum fyrirtækja í gangi en á daginn þegar raforkunotkun rekstrarins eykst er raforkuframleiðslan einnig á hápunkti. Sólarorkuver á þaki bygginga fyrirtækja taka auðvitað ekkert auka landrými og ganga því ekki á viðkvæma náttúru Íslands og sjónmengun er nánast engin vegna heppilegrar staðsetningar.

Á hápunkti framleiðslunnar þegar dagar eru lengstir vor og sumar þá mun sólarorkuverið framleiða meiri orku en Polestar Destination sýningarsalurinn mun þurfa á að halda en engin raforka frá verinu mun fara til spillis. Lausnin á því er einföld þar sem framleiðslan fer fram á starfsvæði Brimborgar þar sem margvíslegur annar rekstur kallar á raforku. Umframorkan verður þá notuð í öðrum byggingum á svæðinu og því þarf ekki að fjárfesta í dýrum geymslulausnum fyrir raforku. Brimborg mun þó einnig setja upp búnað sem gerir félaginu kleift að selja umframorku til baka inn á almenna dreifikerfi raforku ef á því þyrfti að halda t.d. á þeim dögum eins og sunnudögum eða opinberum frídögum sem lítil sem engin starfsemi er hjá Brimborg.

Sólarorkuver Brimborgar verður það stærsta á Íslandi hvort sem mælt er miðað við uppsett afl í kW, fjölda sólarsella, fjölda fermetra sólarsella eða reiknaða raforkuframleiðslu í kWst. Uppsett afl þess er 26 kW en um er að ræða 70 sólarsellur þar sem hver þeirra er 370 W og þekja þær 130 fermetra á þaki sýningarsalarins. Því er reiknað með að raforkuframleiðslan geti numið allt að 24.000 kWst á ári sem er um 50% af áætlaðri orkuþörf starfsemi Polestar á Íslandi. Áætlað er að framleiðslan muni hefjast nú í vor 2022.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús

Óttar Guðmundsson skrifar: Jarðarfararblús
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?