fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Brynjar segir Pawel, Katrínu, Bjarna Ben og Framsókn að hætta þessu væli

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 13. janúar 2020 11:42

Ljósmynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir bæði núverandi og fyrrverandi þingmenn sem kvartað hafa undan vinnutímanum á Alþingi og segja hann ófjölskylduvænan.

Pawel Bartoszek, forseti borgarstjórnar og fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, sagði einmitt í viðtali við Viðskiptablaðið í síðustu viku að þingmannsstarfið hafi einmitt mátt flokka sem ófjölskylduvænt og því hefði hann ekki hug á því að bjóða sig aftur fram til Alþingis.

Þessi sjónarmið hafa oft skotið upp kollinum á liðnum árum. Meðal þeirra sem hafa sagt Alþingi ófjölskylduvænan vinnustað eru Katrín Jakobsdóttir,  forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Ásgerður Gylfadóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins, sem lagði fram þingsályktunartillögu í lok síðasta árs um að Alþingi yrði gerður að fjölskylduvænum vinnustað, ásamt fimm öðrum þingmönnum Framsóknarflokksins.

Ætti ekki að koma á óvart

Brynjar segir að vinnutíminn ætti ekki að koma neinum á óvart:

„Margir þingmenn, bæði núverandi og fyrrverandi, kvarta sáran yfir því að starf þingmannsins sé ekki fjölskylduvænt. Eins og að eðli starfsins hafi verið þeim hulið þegar þeir buðu sig fram. Svona svipað að þeir sem réðu sig í vaktavinnu kæmi á óvart að þurfa að vinna stundum á kvöldin og gætu því ekki alltaf lesið fyrir börnin fyrir svefninn.“

Fjölskylduvænt starf

Brynjar  viðurkennir að vissulega megi skipuleggja störfin í þingsal betur, en þau séu ekki nema brot af starfi þingmanns:

 „Þessir örfáu þingfundir á kvöldin og stundum inn í nóttina gerir starfið, ef starf skyldi kalla, er ekki ófjölskylduvænt. Svo hafa þingmenn meira svigrúm en launþegar almennt og mætti í raun segja að starf þingmannsins sé fjölskylduvænna en gengur og gerist. Svo má ekki gleyma því að aðstoð við þingmenn heftur aukist til muna og létt undir. En stjórnmálamaður sem eitthvað vill leggja til málanna er þó alltaf í vinnunni og valdi það hlutskipti.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Næstráðandi Verkamannaflokksins í Bretlandi sætir lögreglurannsókn

Næstráðandi Verkamannaflokksins í Bretlandi sætir lögreglurannsókn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra