Ísland fellur um sex sæti í úttekt IMD viðskiptaháskólans á stafrænni samkeppnishæfni í ár og fer því úr 21. sæti niður í 27. sæti af 63 samkvæmt tilkynningu frá Viðskiptaráði. Um er að ræða sambærilega úttekt og IMD gerir á samkeppnishæfni ríkja í víðu samhengi, þar sem Ísland mælist í 20. sæti.
Niðurstaðan er sögð talsvert bakslag eftir hækkun síðustu ár og er Ísland nú komið í sama sæti og árið 2014. Lækkunin er sögð skýrast helst af lakara mati á hversu viðbúnir Íslendingar eru að takast á við breytingarnar framundan.
„Á tímum þegar tæknibreytingar eru hraðar og geta ríkja til að takast á við þær mun ráða árangri á ýmsum sviðum samfélagsins eru niðurstöðurnar umfram allt vonbrigði. Ísland þarf og á að gera betur til að tryggja stafræna samkeppnishæfni,“ segir í tilkynningunni.
„Það eru vonbrigði að Ísland falli í stafrænni samkeppnishæfni. Undanfarin ár hefur Viðskiptaráð lagt mikið upp úr því að fyrirtæki og hið opinbera taki á móti og nýti þau tækifæri sem felast í tæknibreytingum svo ljóst er að við þurfum að gera mun betur. Til að snúa við þróuninni og sækja fram þurfum við annars vegar að hlúa að styrkleikum Íslands og hins vegar bæta veikleikana. Í því samhengi höfum við tekið saman lista yfir nokkra af helstu styrkleikum og veikleikum Íslands. Vegna þess hve fámenn við erum munum við seint skora hátt á mælikvörðum eins og hversu hátt hlutfall vélmenna á heimsvísu er á Íslandi. Aftur á móti getum við gert betur í að laða til landsins alþjóðlega reynslu, auka flæði erlendra og íslenskra stúdenta yfir landamærin, nýta betur rannsóknir til að skapa viðskiptatækifæri og bæta úr stafrænni þjónustu hins opinbera.“
segir Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Stafrænni samkeppnishæfni er skipt í þrjá meginþætti:
Bandaríkin sitja sem fyrr í efsta sæti en þar á eftir koma Singapúr og Svíþjóð. Mjög litlar breytingar hafa orðið á efstu sætum fyrir utan að Holland hefur farið upp í 6. sæti en Noregur færst niður í 9. sæti. Öll hin Norðurlöndin eru því á topp tíu og langt fyrir ofan Ísland.
„Þetta er áhyggjuefni því Ísland vill almennt bera sig saman við hin Norðurlöndin og niðurstöðurnar gefa til kynna að við stöndum ekki jafn vel að vígi og þau þegar kemur að yfirstandandi tæknibreytingum,“
segir í tilkynningu.
Um úttektina
Úttekt IMD á samkeppnishæfni ríkja er ein sú umfangsmesta í heimi og hefur verið framkvæmd í meira en 30 ár. Viðskiptaráð Íslands hefur verið samstarfsaðili IMD hér á landi síðustu ár. Árið 2017 hóf IMD einnig sérstaka birtingu á stafrænni samkeppnishæfni í 63 ríkjum og er hún nú birt í þriðja sinn. Sú úttekt samanstendur af 51 undirþætti. Af þeim byggja 31 á haggögnum og 20 á alþjóðlegri stjórnendakönnun sem um 6.200 stjórnendur fyrirtækja og annarra samtaka taka þátt í.