fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Halldór Blöndal skammar Davíð Oddsson – „Það er ekki fótur fyrir þessari fullyrðingu“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 11. júní 2019 09:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Blöndal, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, tekur Davíð Oddsson á beinið í grein í Morgunblaðinu í dag. Tilefnið eru skrif Davíðs í Reykjavíkurbréfi um Sjálfstæðisflokkinn og 90 ára afmæli hans á dögunum, hvar Davíð fór ófögrum orðum um sinn gamla flokk, en hann hefur sagt í skrifum sínum að endalok Sjálfstæðisflokksins væri ekki „endilega harmsefni“ og virðist mun hrifnari af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Miðflokknum heldur en Bjarna Benediktssyni og Sjálfstæðisflokknum.

Sjá nánar: Davíð hraunar yfir Sjálfstæðisflokkinn og hæðist að 90 ára afmælishátíð hans

Sjá einnig: Davíð Oddsson segir endalok Sjálfstæðisflokksins ekki endilega vera „harms­efni“

Halldór gefur Davíð góð ráð um bréfaskriftir, að þau sé ekki gott að rita í reiði:

„Bréfa­skrift­ir geta verið hættu­leg­ar af því þær koma upp um mann, – lýsa því í hvaða sál­ar­ástandi maður er þá stund­ina. Og auðvitað hefn­ir það sín, ef illa ligg­ur á manni, – þá mikl­ar maður hlut­ina fyr­ir sér og freist­ast til að fara ekki rétt með. Faðir minn kenndi mér að senda ekki slík bréf frá mér fyrr en að morgni, sem var holl ráðlegg­ing og olli því að þau voru aldrei send.“

Saknaði Davíðs og Þorsteins

Halldór nefnir einnig að afmælishátíð Sjálfstæðisflokksins hafi heppnast vel, en að margir hafi saknað þess að sjá ekki fyrrverandi formenn flokksins á svæðinu:

„Marg­ir söknuðu þess þó, að sjá ekki sína gömlu for­menn, þig og Þor­stein Páls­son. Hvor­ug­ur ykk­ar sýndi sig en hefði þó farið vel á því að þið hefðuð komið sam­an, – jafn­aldr­ar og slituð barns­skón­um á Sel­fossi og bjugguð meira að segja um hríð við sömu göt­una hvor á móti öðrum.“

Einn þeirra var Davíð

Þá lofar Halldór samstöðu stjórnarflokkanna og stöðu þjóðmála og þjóðarbúsins, en telur að Davíð hafi farið illa að ráði sínu er hann endurbirti hluti af grein Jóns Hjaltasonar, sem fór einnig hörðum orðum um Sjálfstæðisflokkinn og sagði hann lítið hafa gert til að lækka ofurskatta vinstri-stjórnarinnar, og stæði að baki fóstureyðingarfrumvarpinu. Segir Halldór að grein Jóns hafi verið full af ósannindum og rangfærslum og tekur dæmi um ráðningu seðlabankastjóra, sem Jón segir að hafi verið ráðinn tvisvar í starf sitt:

„Hið rétta er, að Már var ráðinn í júlí 2009 en þá var vinstri stjórn í land­inu. Már var síðan end­ur­ráðinn eft­ir aug­lýs­ingu 2014 og skipaði Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra í stöðuna. Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son var þá for­sæt­is­ráðherra og hafði um það að segja. Rétt er að rifja upp, að hann var formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins í byrj­un árs 2009 þegar all­ur þing­flokk­ur þess flokks greiddi at­kvæði með því að breyta lög­um um Seðlabank­ann til þess að losna við þá seðlabanka­stjóra sem þá voru. Einn þeirra varst þú, Davíð Odds­son,“

segir Halldór.

Ekki fótur fyrir fullyrðingu Davíðs

Halldór hjólar einnig í Davíð vegna afstöðu hans til þriðja orkupakkans og nefnir að hann muni skrifa meira til Davíðs á næstunni:

„Margt fell­ur mér illa í þessu þínu síðasta Reykja­vík­ur­bréfi en verst þó, að þú skul­ir halda því fram að í þriðja orkupakk­an­um fel­ist framsal á yf­ir­ráðum yfir ís­lensk­um orku­markaði til stofn­ana Evr­ópu­sam­bands­ins. Það er ekki fót­ur fyr­ir þess­ari full­yrðingu. Og það er raun­ar at­hygl­is­vert, að þú skul­ir setja hana fram. Þjóðin á það þér að þakka, að samn­ing­ar tók­ust um hið Evr­ópska efna­hags­svæði og þú sann­færðir mig og aðra um, að sá samn­ing­ur rúmaðist inn­an ákvæða stjórn­ar­skrár­inn­ar. Sömu­leiðis fyrsti og ann­ar orkupakk­inn. Þar vannstu gott verk og þarft. Mér ligg­ur meira á hjarta en það verður að bíða næstu grein­ar sem birt­ist inn­an fárra daga ef guð lof­ar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega