fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Þórdís Kolbrún segir einkavæðingu ekki á dagskrá: „Látum þá neita því“ er auðvitað elsta trixið í bókinni“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. mars 2019 12:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, ráðherra ferða,-iðnaðar og nýsköpunarmála, hefur brugðist við skrifum Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi ráðherra VG, sem sagði að sitthvað héngi á spýtunni í kaupum ríkisins á Landsneti, sem er í meirihlutaeigu Landsvirkjunar. Telur Ögmundur að um undanfara einkavæðingar Landsvirkjunar að ræða og vísar til þess sem Þórdís lét hafa eftir sér á síðum Morgunblaðsins:

„Í fyrsta lagi segir hún að ríkisstjórnin hafi samþykkt að skattgreiðendur kaupi Landsnet af eigendum Landsnets sem að uppistöðu eru skattgreiðendur sjálfir. Hér er því um það að ræða að taka peninga úr einum vasa okkar til að setja annan. Hér hangir sitthvað á spýtunni sem snýr að einkavæðingu raforkugeirans. En svo það fari ekki á milli mála þá á Landsnet að sjálfsögðu að vera í eigu almennings framvegis sem hingað til. Það eiga orkuverin að vera einnig og að sjálfsögðu orkuauðlindirnar. Aldeilis ekki hefur mbl.is eftir ráðherranum: “Þór­dís Kol­brún sagðist hafa heyrt af því að hóp­ur fólks sem ætlaði að berj­ast gegn samþykkt þriðja orkupakk­ans á Alþingi ætlaði að fara fram und­ir slag­orðinu „Okk­ar orka“ og sagðist hún túlka þau skila­boð sem svo að þessi hóp­ur teldi orku­auðlind­ina af sama meiði og fisk­inn í sjón­um, þ.e. í sam­eign þjóðar­inn­ar. Svo er ekki, sagði ráðherra, og lagði áherslu á að vatns­afl og jarðvarmi og nýt­ing­ar­rétt­ur af þeirri auðlind væri í hendi land­eig­enda.”

Einkavæðingarkapallinn

Ögmundur sagði einnig að í gang væri kominn „einkavæðingarkapall“ orkugeirans:

„Því miður held ég að í gang sé kominn einkavæðingarkapall orkugeirans og að kaup almennings á Landsneti frá sjálfum sér sé hluti af þessum kapli. Slíkur einkavæðingarkapall byrjar alltaf á að markaðsvæða allar einingar þeirrar starfsemi sem á að selja, skilgreina og aðgreina einstaka hluta hennar og gera þá þannig söluhæfa. Þegar það hefur verið gert ríður höggið og almenningur er sviptur eignum sínum. Til að hægt sé að selja Landsvirkjun þarf því fyrst að aðgreina Landsnet þar frá.“

Engin ný tíðindi

Þórdís segir að ekki sé um neina stefnubreytingu sé að ræða og fullyrðir að ekki sé á dagskrá að einkavæða Landsvirkjun:

„Látum þá neita því“ er auðvitað elsta trixið í bókinni.Ég sé að Ögmundur Jónasson dregur miklar ályktanir af ræðu minni á ársfundi Landsvirkjunar. Einkavæðing Landsvirkjunar er ekki á dagskrá, svo það sé sagt. Orkuauðlindin er síðan þjóðareign (eða strangt til tekið ríkiseign, þegar ríkið á auðlind og eignarrétt að þeim) að því marki sem hún er á landi í eigu ríkisins, og hún er það að mestu og engin breyting boðuð á því. Hún er eign sveitarfélaga að því marki sem hún er á landi í eigu sveitarfélaga. Og hún er einkaeign að því marki sem hún er á landi í einkaeigu. Þetta eru alls engin ný tíðindi eða stefnubreyting á nokkurn hátt.“

Þórdís Kolbrún segir smávirkjanir fela í sér umtalsverð tækifæri fyrir bændur:

 „Viljum við taka þau tækifæri af bændum og ríkisvæða þessa auðlind? Mögulega vilja Ögmundur Jónasson og aðrir einbeittir vinstrimenn gera það. Eigum við að láta þá neita því?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild

Þykir miður að kaupin á TM hafi orðið umdeild
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“