fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Ögmundur Jónasson

Ögmundur segir bandarísk stjórnvöld koma í veg fyrir lok stríðsins í Úkraínu

Ögmundur segir bandarísk stjórnvöld koma í veg fyrir lok stríðsins í Úkraínu

Fréttir
19.10.2023

„Þetta snýst um að veikja Rússland og þessi skýrsla snýst um hvernig á að teygja Rússland þannig að þeir hætti að ráða við stöðuna. Þeir [Bandaríkjamenn] kalla þetta þeirra eigið staðgengilsstríð (e. proxy war),“ segir Ögmundur Jónasson fyrrum ráðherra og þingmaður um áfangaskýrslu Bandaríkjamanna sem kom út tveimur árum fyrir innrás Rússa í Úkraínu. Ögmundur Lesa meira

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu

Eyjan
20.03.2023

Ögmundur Jónasson segir íslensk stjórnvöld mismuni umsækjendum um alþjóðlega vernd hérlendis. Vísar dómsmálaráðherrann fyrrverandi þar í meðhöndlun íslenskra stjórnvalda á fólki frá Úkraínu og Venesúela sem tekið er opnum örmum hér á landi á meðan fólk frá öðrum stríðshrjáðum löndum fær ekki sömu meðferð. Þetta kemur fram í aðsendri grein Ögmunds sem birtist í Morgunblaðinu Lesa meira

Ögmundur sakar Jóhönnu og Steingrím um svik í Icesavemálinu

Ögmundur sakar Jóhönnu og Steingrím um svik í Icesavemálinu

Eyjan
30.12.2021

Ögmundur Jónasson, fyrrum alþingismaður og ráðherra, segir í nýrri bók sinni, Rauða þræðinum, að bæði Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir, leiðtogar vinstristjórnarinnar frá 2009 til 2013, hafi svikið hann í Icesavemálinu. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að á fundi sem Jóhanna og Steingrímur héldu með Ögmundi fyrir einn ríkisstjórnarfund vorið 2009 hafi Lesa meira

Ögmundur segir réttast að Vinstri græn breyti nafni flokksins

Ögmundur segir réttast að Vinstri græn breyti nafni flokksins

Eyjan
29.12.2021

Í nýrri bók Ögmundar Jónassonar, Rauði þráðurinn, segir hann að gamli flokkurinn hans, Vinstri græn, hafi villst af leið og réttast væri að hann breyti nafninu og hætti að nota bæði vinstri og græn. Bók Ögmundar kemur út í byrjun næsta árs. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að við lestur bókarinnar komi Lesa meira

„Þetta er ein af skýringunum á hruninu, eða það er ég sannfærður um“

„Þetta er ein af skýringunum á hruninu, eða það er ég sannfærður um“

Fréttir
25.01.2020

Það er stund lægða á milli grámyglulegan janúareftirmiðdag er blaðamaður bankar upp á í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsráðandi verður þó seint kallaður grámyglulegur. Það er hann Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og formaður BSRB, sem kemur snarlega til dyra og býður blaðamanni inn í hlýjuna. Heimili hans hefur sál, sál sem gjarnan fylgir heimilum þar sem Lesa meira

Ögmundur sér í gegnum blekkingarleik Isavia – „Hvílíkt endemis rugl!“

Ögmundur sér í gegnum blekkingarleik Isavia – „Hvílíkt endemis rugl!“

Eyjan
19.11.2019

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra VG, segir það ótvírætt að stefnt sé að einkavæðingu Leifsstöðvar, þvert á yfirlýsingar samgönguráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar í fréttum í gær, þar sem hann fullyrti að slíkt stæði ekki til. Segir Ögmundur að skipta þurfi út allri stjórn Isavia auk þess að ráða nýjan forstjóra, ef ríkisstjórninni sé alvara Lesa meira

Ögmundur: „Allir sem hafa snefil umfram skammtímaminni vita hvað þar er átt við“

Ögmundur: „Allir sem hafa snefil umfram skammtímaminni vita hvað þar er átt við“

Eyjan
19.09.2019

Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra VG, skrifar um nýja skýrslu OECD um stöðu efnahagsmála hér á landi, sem sögð er sniðin að stefnu Sjálfstæðisflokksins af gagnrýnendum. Ögmundur fer stuttlega yfir sögu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, eða OECD: „Á níunda og tíunda áratug síðustu aldar gerðist OECD helsta hreiður áróðursmeistara markaðsvæðingar samfélaganna. Varð einskonar hugmyndasmiðja eða verkstæði. Á Lesa meira

Segir Sjálfstæðismenn andvíga hertum reglum um jarðakaup auðkýfinga: „Opnuðu landið aftur upp á gátt“

Segir Sjálfstæðismenn andvíga hertum reglum um jarðakaup auðkýfinga: „Opnuðu landið aftur upp á gátt“

Eyjan
30.07.2019

Stefán Ólafsson, félagsfræðiprófessor og sérfræðingur hjá Eflingu, fjallar um jarðakaup erlendra auðmanna á Eyjubloggi sínu í dag, í tilefni þess að meirihluti landsmanna vill herða reglur um jarðakaup útlendinga, samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Stefán telur að Sjálfstæðismenn vilji ekki herða reglurnar, heldur þynna málið út. Hann minnist á orð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um að slíkar takmarkanir Lesa meira

Þórdís Kolbrún segir einkavæðingu ekki á dagskrá: „Látum þá neita því“ er auðvitað elsta trixið í bókinni“

Þórdís Kolbrún segir einkavæðingu ekki á dagskrá: „Látum þá neita því“ er auðvitað elsta trixið í bókinni“

Eyjan
05.03.2019

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, ráðherra ferða,-iðnaðar og nýsköpunarmála, hefur brugðist við skrifum Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi ráðherra VG, sem sagði að sitthvað héngi á spýtunni í kaupum ríkisins á Landsneti, sem er í meirihlutaeigu Landsvirkjunar. Telur Ögmundur að um undanfara einkavæðingar Landsvirkjunar að ræða og vísar til þess sem Þórdís lét hafa eftir sér á síðum Morgunblaðsins: Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af