fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Kolbrún segir harðlínuöflin urra og bíta: „Þeir eru í svo miklum ham að þeir taka ekki rökum“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 28. ágúst 2019 09:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um harðlínudeildina innan Sjálfstæðisflokksins í leiðara Fréttablaðsins í dag. Segir hún að andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafi sérstaka ástæðu til að fagna:

„Þeir þurfa ekki lengur að beita sér af hörku gegn þessum stærsta flokki landsins. Sjálfstæðismenn hafa sjálfir tekið það verk að sér.“

Taka ekki rökum

Kolbrún segir að ekki sé algengt að Sjálfstæðismenn urri og bíti hverjir aðra, en nú sé það daglegt brauð, vegna þriðja orkupakkans og þess klofnings sem orðið hefur í baklandinu vegna fyrirhugaðrar innleiðingar:

„Gamlir og þrautreyndir flokkshestar, sem hafa óbeit á Evrópusambandinu og tortryggja flokksforystuna, hafa farið hamförum vegna þriðja orkupakkans, máls sem engin ástæða er til að æsa sig út af. Ekki þýðir þó að segja þeim það, þeir eru í svo miklum ham að þeir taka ekki rökum. Þessi hópur samanstendur aðallega af eldri karlmönnum, með mikla valdaþörf. Svo sannarlega leiðist þeim ekki að vera í sviðsljósinu. Þeir hafa hátt og finnst greinilega gaman að hlusta á sjálfa sig. Hvað eftir annað þylja þeir rangfærslur sínar um þriðja orkupakkann og banda óþolinmóðir frá sér staðreyndum sem velviljað fólk reynir að ota að þeim.“

Kvenfordómar

Kolbrún segir það merkilegt að harðlínuöflin sjái hvað eftir annað ástæðu til að gera lítið úr konum sem gegna ábyrgðarstöðum innan flokksins, ráðherranum Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og ritara flokksins Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur:

„Þetta eru vitanlega sömu öflin sem hröktu Evrópusinna úr flokknum á sínum tíma. Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki pláss fyrir þannig þenkjandi fólk – sem er einkennilegt þegar í hlut á flokkur sem sækist eftir því að vera stærsti flokkur landsins. Enginn ætti að efast um að Þórdís Kolbrún og Áslaug Arna eiga hugmyndafræðilega meira sameiginlegt með forystu Viðreisnar en forystu Miðflokksins sem afturhaldsöflin í Sjálfstæðisflokknum eru stöðugt að viðra sig upp við. Það var ekki pláss fyrir Evrópusinna í Sjálfstæðisflokknum en þar er nægt rými fyrir fólk sem aðhyllist hugmyndafræði Donalds Trump og félaga. Það getur ekki verið auðvelt fyrir frjálslynda fólkið í Sjálfstæðisflokknum að horfa upp á þessi öfl reyna að yfirtaka flokkinn.“

Fylgist spennt með

Kolbrún spyr hvort flokksforystan muni þola álagið og halda áherslum sínum, eða fara á taugum:

„Baráttan heldur áfram og áhugafólk um pólitík fylgist spennt með, en um leið nokkuð furðu lostið. Enda stórmerkilegt að sjá Sjálfstæðismenn úr harðlínudeild flokksins í ofsafullum leiðangri gegn sínum eigin flokki. Óneitanlega koma upp í hugann hin fleygu orð snillingsins Oscars Wilde: „Allir deyða yndi sitt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun