fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Áhugaverð tölfræði Gunnars Smára um Hugo Chavez: „Thatcher, Reagan og Davíð voru miklu verri“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 25. júlí 2019 16:00

Gunnar Smári Egilsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttan milli hægrimanna og vinstrimanna hefur gjarnan farið fram á grundvelli hagfræðinnar, þar sem hagvöxtur er ýmist sagður besti mælikvarði efnahagsmála þjóða og lífskjaraviðmiða, eða gagnlítil mæling þar sem hún taki ekkert tillit til lífshamingju, vellíðunar, auðlindanotkunar eða tekjuskiptingar. Hægri menn hafa því haldið hagvexti sérstaklega á lofti í gegnum tíðina þegar vel árar, meðan vinstrimenn hafa viljað líta til annarra þátta.

Gunnar Smári Egilsson, sósíalistaforingi, gerir áhugverða samantekt á hagvexti í löndum helstu hetja hægrimanna í gegnum tíðina og setur í samhengi við hagvöxtinn hjá erkióvini hægrisins, Hugo Chavez, fyrrverandi forseta Venesúela:

„Með þessum samanburði er ég ekki að halda því fram að Hugo Chavez hafi verið góður forseti. Aðeins að benda á að þegar nýfrjálshyggjupáfarnir hallmæla honum verður að hafa í huga að þau Thatcher, Reagan og Davíð voru miklu verri. Alla vega þegar hagvöxturinn er notaður sem mælikvarði, en nýfrjálshyggjupáfar láta oft sem sá mælikvarði sé algildur,“

segir Gunnar Smári.

Samantektin er eftirfarandi:

  • Margraet Thatcher var forsætisráðherra Breta í rúm ellefu ár. Á þeim tíma óx hagvöxtur á mann í Bretlandi um 27,7% en á jafnlöngum tíma þar á undan um 32,4% og ellefu árin þar á undan um 36,7%. Hvað sem Thatcher gerði þá var það ekki gott fyrir hagvöxtinn. 

  • Ronald Regan var forseti Bandaríkjanna í átta ár. Á þeim tíma óx hagvöxtur á mann í Bandaríkjunum um 18,1% en átta árin þar á undan um 22,1% og átta árin þar á undan um 24,6%. Hvað sem Reagan gerði þá var það ekki gott fyrir hagvöxtinn.

  • Davíð Oddsson var forsætisráðherra Íslands í þrettán ár. Á þeim tíma óx hagvöxtur á mann á Íslandi um 31,7% og hrundi síðan stuttu síðar. Þrettán árin fyrir Davíðstímann var hagvöxtur á mann 25,6%, þrettán árin þar á undan um 60,1% og þrettán árin þar á undan um 74,3%. Hvað sem Davíð gerði þá var það ekki gott fyrir hagvöxtinn.

  • Hugo Chavez var forseti Venesúela í ellefu ár. Á þeim tíma óx hagvöxtur á mann í Venesúela um 35,7% en ellefu árin þar á undan hafði landsframleiðsla á mann í Venesúela dregist saman um 15,4% og ellefu árin þar á undan dróst landsframleiðslan einnig saman, um 10,1%, en nýfrjálshyggjan hafði leikið Venesúela illa eins og mörg önnur lönd Suður-Ameríku. Hvað sem Chavez gerði þá var það gott fyrir hagvöxtinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Markvisst unnið að því að afvegaleiða umræðuna

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Markvisst unnið að því að afvegaleiða umræðuna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr
Eyjan
Fyrir 1 viku

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“