fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Könnun MMR: Sósíalistaflokkurinn, VG og Viðreisn sækja í sig veðrið

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 7. maí 2019 11:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur minnkað um rúm tvö prósentustig frá síðustu fylgismælingu MMR og mælist nú 20,2% samkvæmt nýrri könnun MMR. Samfylkingin mældist með 14,1% fylgi, sem er nær óbreytt frá síðustu könnun.

Þá minnkar fylgi Framsóknarflokksins um tæplega eitt og hálft prósentustig en fylgi Vinstri grænna og Viðreisnar hækkar um tæplega eitt og hálft prósentustig frá síðustu mælingu.

Miðflokkurinn stendur í stað eftir blússandi siglingu undanfarnar vikur og mánuði.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkaði um um rúm fjögur prósentustig og mældist nú 40,4% en var 44,6% í síðustu mælingu.

Sósíalistaflokkur Íslands fer úr 2.8 prósentum í 4.2 prósent.


Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,1% og mældist 14,3% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 13,4% og mældist 12,1% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 13,4% og mældist 13,3% í síðustu könnnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 9,8% og mældist 11,2% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 9,2% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,2% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,1% og mældist 5,0% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,2% og mældist 2,8% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,4% samanlagt.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2.

Samtals voru 79,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,2%), myndu skila auðu (8,5%), myndu ekki kjósa (2,2%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 941 einstaklingur, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 30. apríl til 3. maí 2019

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?