Í Kiljunni í kvöld förum við á Selfoss og hittum Gunnar Marel Hinriksson, sagnfræðing og skjalavörð. Gunnar hefur nýskeð gefið út bók sem nefnist einfaldlega Selfoss, hún inniheldur ljósmyndir eftir hann og textabrot sem tengjast bænum með einum og öðrum hætti. Myndin sýnir enga sérstaka glansmynd af Selfossi, enda eru einkunnarorð bókarinnar komin úr lagi eftir Tom Waits – I Like My Town With a Little Drop of Poison.
Í þáttinn kemur Oddný Eir Ævarsdóttir sem hlaut Fjöruverðlaunin fyrir bók sína Jarðnæði.
Við fjöllum um hið mikla verk Reykvíkingar, fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, en ritstjóri þess er Þorsteinn Jónsson. Nú er komið út annað bindi verksins, en í því er að finna upplýsingar um alla Reykvíkinga samkvæmt íbúatali 1910 ásamt miklum fjölda ljósmynda. Fæstar þeirra hafa sést áður – og sumar eru hreint stórkostlegar.
Páll Baldvin og Kolbrún brugðu sér á Bókamarkaðinn í Perlunni og við fáum að sjá hvaða bækur þau völdu sér.
En Bragi er kominn á Facebook.
Ein af ljósmyndum Gunnars Marels frá Selfossi.