fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026

Lesið í tarot Dóra – Þótt hann virðist oft vera mikil brussa þá er hann rólyndismanneskja

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 21. desember 2019 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dóri DNA er nýstirnið í jólabókaflóðinu því fyrsta skáldsaga hans, Kokkáll, hefur rokið upp metsölulista. DV ákvað að spá í tarotspilin fyrir Dóra, sem er vel kunnugur sviðsljósinu, og athuga hvað framtíðin ber í skauti sér eftir þessa frægðargöngu í skáldheimum. Lesendum er bent á að þeir geta dregið sín eigin tarotspil á vef DV.

Fæddist gamall

Fyrsta spilið er Bikargosi og táknar persónuleika skáldsins. Þótt hann virðist oft vera mikil brussa og æða áfram þá er hann rólyndismanneskja. Hann býr yfir miklum listrænum hæfileikum en einnig djúpum andlegum þroska. Hann fæddist gamall, eins og gárungarnir segja. Hann er traustur vinur og alltaf til í að hjálpa. Þótt það sjáist ekki utan á honum þá er hann hlédrægur og góður í að fela eigin hæfileika. Um þessar mundir er Dóri tvíefldur og eflir eigin þroska og sköpunargáfu. Það eru fleiri skáldsögur í kortunum ef Dóri finnur löngun til að stinga niður penna – og þessar skáldsögur verða enn vinsælli en Kokkáll. Einhverjar breytingar eru í vændum og ekki ósennilegt að Dóri setjist á skólabekk á ný.

Lykill að velgengni

Næst er það Breytingar. Að baki hugsjón Dóra er mikill kraftur. Hann veit að lykill að velgengni er góð hugmynd. Þess vegna æðir hann ekki af stað fyrr en góður grunnur er reistur. Nú er kafli á enda hjá Dóra og nýr um það bil að hefjast. Enn koma þessar breytingar upp, sem munu eiga sér stað fyrr en síðar. Annars konar breytingar eru einnig í vændum og þá í einkalífinu. Nýtt barn kemur hér sterklega til greina. Dóri tekur breytingum með gleði í hjarta þótt honum finnist þær erfiðar.

Erfitt framundan

Loks er það Jafnvægi, en það spil hvetur Dóra til að fara meira inn á andlega sviðið og leita að innra jafnvægi. Það mun ýta undir jákvæða eiginleika hans. Hann er fær um að takast á við erfiðar aðstæður með atferli sínu og aga, en slíkar aðstæður eru ekki langt undan. Hann verður að vera duglegur að minna sig á að hann getur tekist á við hvað sem er. Honum finnst sköpunarbrunnurinn tómur og því þarf hann að finna sinn takt á ný. Það getur tekið tíma og hann ætti ekki að segja já við einhverju í hálfkæringi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Vísindamenn vara við tveimur veirum sem gætu valdið næsta heimsfaraldri

Vísindamenn vara við tveimur veirum sem gætu valdið næsta heimsfaraldri
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ronaldo áfram í fýlu og skrópaði í leikinn í gær

Ronaldo áfram í fýlu og skrópaði í leikinn í gær
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Sefur þú of mikið? – Það er ekki gott fyrir heilann

Sefur þú of mikið? – Það er ekki gott fyrir heilann
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val

Tómas Blöndal-Petersson semur við Val
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Maguire nefnir dæmi af æfingasvæði United sem hefur hrifið hann undanfarið

Maguire nefnir dæmi af æfingasvæði United sem hefur hrifið hann undanfarið
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi
Eyjan
Fyrir 19 klukkutímum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Tárin á Alþingi

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Tárin á Alþingi
Fókus
Fyrir 20 klukkutímum

Beint streymi frá Íslandsmótinu í ólympískum lyftingum

Beint streymi frá Íslandsmótinu í ólympískum lyftingum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.