fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Kaþólska kirkjan á Íslandi harðlega gagnrýnd fyrir bælingarmeðferðir – „Meiri áhuga á að bæla niður samkynhneigð heldur en barnagirnd“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 3. mars 2026 17:00

Jakob Rolland viðurkenndi að kirkjan stundar bælingu en slíkt er ólöglegt samkvæmt íslenskum hegningarlögum. Mynd/Kaþólska kirkjan á Íslandi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaþólska kirkjan á Íslandi og presturinn Jakob Rolland hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að aðstoða fólk við að bæla niður samkynhneigð. Bent er á að slíkar meðferðir séu lögbrot og spurt hvers vegna kirkjan einbeiti sér ekki að sínum innanmeinum, sem sagt barnagirnd kaþólskra presta.

Í Meiningunni, hlaðvarpi á RÚV, var rætt við Jakob Rolland varðandi bælingu samkynhneigðra. En hann sagði að kirkjan vonaði að samkynhneigðir breyti sér með tímanum og að kirkjan veiti aðstoð við það. Þar sem sálfræðingar og félagsráðgjafar finnist ekki til verksins þurfi kirkjan að vera til staðar.

„Kynhneigð er bara einn þáttur af mörgum öðrum sem varða tilhneigingar einstaklingsins til einhvers lífsstíls sem er ekki góður fyrir einstaklinginn og ekki góður fyrir samfélagið,” sagði  Jakob.

Bent er á að bælingarmeðferir hafa verið ólöglegar á Íslandi síðan árið 2023, enda ekki studdar af vísindum og hafa haft verulega slæm áhrif á andlega og líkamlega heilsu þeirra sem undirgangast þær.

Kirkjan skýlir sér hins vegar með því að ekki sé um eiginlega bælingarmeðferð að ræða heldur „siðferðislega og andlega leiðsögn.“

Reiði og hneykslun

Hefur þetta fallið í mjög grýttan jarðveg og margir fordæmt kaþólsku kirkjuna og Jakob Rolland. Meðal annars í umræðum um málið á samfélagsmiðlinum Reddit. Þar er meðal annars bent á að barnagirnd sé vandamál sem kaþólska kirkjan ætti að vera að fást við, enda hafi fjölmargir kaþólskir prestar nauðgað börnum.

„Alltaf hafa þeir meiri áhuga á að bæla niður samkynhneigð heldur en barnagirnd og enginn hefur ásakað þá um að vera samkynhneigða,“ segir einn netverji í umræðum um málið.

Aðrir nefna að grípa þurfi til aðgerða gegn kirkjunni strax. „Þetta er þeirra játning á því að það er verið að stunda bælingameðferðir innan kirkjunnar, sama hvað þeir kalla það, þetta er bælingameðferð. Það eru hinsegin börn kaþólska foreldra sem munu þjást verst af svona hugmyndafræði. Ég sé alveg fyrir mér að þvinguð bælingameðferð á börnum hafi verið í gangi undanfarin ár þrátt fyrir þetta bann,“ segir einn. Kaþólska kirkjan sé að viðurkenna að hún brjóti íslensk hegningarlög.

Viðurkenning á hegningarlagabroti

Fjölmargir hafa einnig hneykslast á framferði kaþólsku kirkjunnar á Facebook. Meðal annars Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir.

Ugla vitnar í hegningarlögin.

„Mér finnst það eiginlega ótrúlegt að fólk í nútímasamfélagi haldi að bælingarmeðferðir virki,“ segir Ugla og bendir á að kaþólska kirkjan sé að viðurkenna að stunda ólöglegt athæfi. Athæfi sem allt að þriggja ára fangelsisvist liggur við.

„Auðvitað er það ekkert annað en blekking af hálfu Kaþólsku kirkjunnar að láta sem svona meðferðir virki, og plata fólk út í þessa vitleysu. Skaðinn sem fólk hlýtur af svona meðferðum getur varað ævilangt, og held ég að þessi kanslari ætti frekar bara sjálfur að skella sér í einhverskonar meðferð eða námskeið til að uppræta þá fordóma sem hafa tekið sér fótfestu í huga og hjarta hans,“ segir Ugla.

Tugþúsundir barnaníðinga

Bjarni Jónsson, athafnastjóri hjá Siðmennt, segist hafa að mestu leyti haft þolinmæði gagnvart trúarbrögðum og sérstaklega rétti fólks til að trúa því sem það vill og iðka sína trú. En annað gildi um starfsemi sem þessa.

Bjarni bendir á að innan kaþólsku kirkjunnar sé barnagirnd presta stórt vandamál.

„Eg hef margoft lýst skoðunum mínum á þeim aðilum sem eru í forsvari fyrir tiltekinni trúarskoðun þegar ég tel hana ganga gegn réttindum annara, lífi fólks og mannhelgi. Í meðfylgjandi grein er einmitt slíkt uppi. Hér setur kaþólska kirkjan sig í þá stöðu að dæma það að vera hinsegin sé „lífsstíll“! Að það sé hægt að „lækna“ svona fólk með „umbreytingu“!“ segir Bjarni. „Verð að viðurkenna að ég hef ekki skilið margt af því sem gerist innan kaþólskunnar s.s. en þar virðist stór hluti prestanna einfaldlega vera barnaníðingar – í tugþúsundatali um allan heim! Þess vegna skil ég heldur ekki það fólk sem játar stuðning sinn við kaþólska trú. Það ætti að líta sér nær þegar prestar þeirra opinbera mannfjandsamlegar skoðanir kirkjunnar.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kalon nýtt vörumerki fyrir heilsu- og íþróttasvið Icepharma 

Kalon nýtt vörumerki fyrir heilsu- og íþróttasvið Icepharma 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framkvæmdastjóri N1 svarar Degi: „Umræða um olíuverð þarf að byggja á gögnum og staðreyndum“

Framkvæmdastjóri N1 svarar Degi: „Umræða um olíuverð þarf að byggja á gögnum og staðreyndum“