fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

American Idol-keppandi sagður hafa sviðsett harmleik til að leyna ódæðinu – Upptaka úr búkmyndavél vekur óhug

Pressan
Þriðjudaginn 3. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Caleb Flynn, fyrrverandi keppandi í American Idol, hringdi í neyðarlínuna þann 16. febrúar. Hann sagðist að einhver hefði brotist inn og skotið eiginkonu hans, Ashley, til bana. Þegar lögreglu bar að garði var Caleb í miklu uppnámi en upptaka úr búkmyndavél sýnir meðal annars þegar Caleb hringdi í móður sína til að greina henni frá andlátinu.

Á upptökunni virðist Caleb vera frá sér af sorg. Hann grætur hástöfum, ofandar og kastar upp. Á einum tímapunkti má heyra hann veina ítrekað: Ó, guð minn góður. Svo hringir hann í móður sína: „Ashley er dáin. Mamma, hún er farin. Ég veit ekki hvað ég á að gera.“

Eftir símtalið tilkynnir hann lögreglu að honum sé óglatt og byrjar svo að kasta upp. Móðir hans mætir síðar á staðinn og þá fellur Caleb til jarðar, stendur svo upp, faðmar móður sína og segist enn eiga eftir að segja dætrum sínum að mamma þeirra sé dáin.

Caleb þótti hegða sér þarna eins og syrgjandi eiginmaður í áfalli yfir hrottalegu andláti eiginkonu sinnar. Hegðunin þykir þó athugaverð í ljósi þess að Caleb hefur nú verið handtekinn og ákærður fyrir að myrða Ashley. Lögreglan telur að hann hafi banað konu sinni, sviðsett innbrot og svo logið að lögreglu til að reyna að komast upp með morðið. Hann hafi svo leikið hlutverk syrgjandi eiginmanns.

Caleb keppti í 12. seríu American Idol sem var sýnd árið 2013. Í viðtali í þáttunum talaði Caleb um eiginkonu sína:

„Ég gjörsamlega elska drottinn og ég elska eiginkonu mína meira en allt. Hún er mjög, mjög falleg. Ég elska hana. Ég er bara venjuleg manneskja sem elskar að syngja meira en allt.“

Dætur hjónanna voru sofandi á heimilinu þegar Ashley lést. Caleb hélt því fram í símtali sínu til neyðarlínunnar að einhver hefði brotist inn og myrt eiginkonu hans. Hún hefði verið skotin ítrekað í höfuðið. Sagði Caleb í símtalinu að hann gæti ekki fullyrt að innbrotsþjófurinn hefði yfirgefið heimilið.

„Það er blóð alls staðar, guð minn góður, guð minn góður, guð minn góður.“

Lögreglu fór þó strax að gruna þegar hún kom á vettvang að ekki væri allt með felldu. Vettvangurinn virtist settur á svið. Caleb hefur neitað sök.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla ekki að skera undan birninum

Ætla ekki að skera undan birninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa