

Real Madrid verður án mikilvægs leikmanns í allt að tíu mánuði en þetta kemur fram í spænskum miðlum.
Rodrygo, vængmaður Real, er að glíma við slitið krossband og er ljóst að hann mun ekkert spila meira á þessu ári.
Um er að ræða alvarleg meiðsli og er útlit fyrir að Brassinn spili ekkert þar til 2027.
Rodrygo er 25 ára gamall og á að baki tæplega 200 deidlarleiki fyrir Real og skorað í þeim 33 mörk.
Ljóst er að hann verður ekki með Brasilíu á HM í sumar vegna meiðslana.