fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Útbrot á hálsi forsetans vekur áhyggjur – Læknir Trumps tjáir sig um málið

Pressan
Þriðjudaginn 3. mars 2026 14:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útbrot á hálsi Bandaríkjaforseta hefur valdið heilabrotum, en útbrotin sáust á myndum af Donald Trump forseta sem voru teknar í Hvíta húsinu í gær. Þetta hefur valdið svo miklu umtali að læknir forsetans hefur séð sig nauðbeygðan til að tjá sig um málið en hann segir í samtali við CNN að útbrotið megi rekja til fyrirbyggjandi meðferðar.

„Trump forseti er að nota mjög hefðbundið krem á hægri hlið hálsins, en um er að ræða fyrirbyggjandi húðmeðferð,“ segir læknirinn Sean Barbabella í yfirlýsingu til CNN. „Forsetinn mun nota kremið í viku og má búast við því að roðinn vari í nokkrar vikur.“

Barbabella fór ekki nánar í saumana á því hvað er verið að fyrirbyggja en Hvíta húsið hafði ekki svarað fyrirspurnum miðilsins í dag. Trump verður áttræður í sumar en hann er elsti maður til að vera svarinn inn í embætti forseta Bandaríkjanna. Sökum aldurs forsetans fá Bandaríkjamenn gjarnan áhyggjur af heilsu hans þegar hann sést með útbrot eða mars, en nokkuð hefur verið fjallað um marbletti sem reglulega hafa birst á handabökum hans. Marblettirnir hafa annars vegar verið útskýrðir með tíðum og þéttum handaböndum samhliða notkun forsetans á blóðþynnandi lyfjum. Forsetinn sjálfur gefur lítið fyrir áhyggjur af heilsu sinni og segist vera hraustasti forseti sem þjóð hans hafi séð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla ekki að skera undan birninum

Ætla ekki að skera undan birninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa