

Leonardo Jardim er búinn að finna sér nýtt félag sem verður hans 13. þjálfarastarf á ferlinum.
Jardim er nafn sem margir kannast við en hann gerði garðinn frægan sem stjóri Monaco í Frakklandi.
Hann þjálfaði síðast Cruzeiro í Brasilíu 2025 en var fyrir það hjá fjórum félögum í Sádi Arabíu.
Jardim er nú að snúa aftur til Brasilíu en hann hefur samþykkt að taka við liði Flamengo í efstu deild.
Jardim gerir samning til 2027 og tekur við af fyrrum leikmanninum Filipe Luis sem hefur verið rekinn.