fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Fréttir

Atvinnurekstrarbann Elvars og Björgvins Narfa staðfest – Undarlegar færslur tengdar veitingastaðnum Ítalíu

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 3. mars 2026 19:30

Elvar var framkvæmdastjóri og prókúruhafi rekstarfélagsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur staðfest atvinnurekstrarbann Elvars Ingimarssonar og Björgvins Narfa Ásgeirssonar til þriggja ára. Er það vegna aðkomu þeirra að rekstri veitingastaðarins Ítalíu sem varð gjalþrota í október árið 2024.

Elvar og Björgvin Narfi voru þann 12. janúar dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til atvinnurekstrarbanns og var það staðfest af Landsrétti þann 26. febrúar.

Elvar og Björgvin Narfi áttu hvor um sig helming í félaginu Ítalgest ehf, rekstrarfélagi Ítalíu, og Elvar var framkvæmdastjóri og prókúruhafi.

Sjá einnig:

Elvar og Björgvin Narfi úrskurðaðir í þriggja ára atvinnurekstrarbann – Svik og prettir við rekstur veitingahússins Ítalíu

Þegar félagið fór í þrot voru kröfurnar 116 milljónir en eignir litlar. Ársreikningum hafði ekki verið skilað og ekki hafði verið hægt að nálgast ýmis gögn, svo sem reikninga og samninga. Þá hafi verið fjöldi óútskýrðra greiðsla inn á persónulega reikninga þeirra félaga eða ættingja þeirra. Einnig hafi verið lagðar 8 milljónir króna inn á skartgripaverslun í Dubaí og sama upphæð inn á ótilgreinda bílasölu til þess að kaupa Audi bifreið.

Fór skiptastjórinn Björn Þorri Viktorsson í mál við Elvar og Björgvin Narfa og krafðist atvinnurekstrarbanns. Var það samþykkt sem og að Elvari og Björgvini var gert að greiða rúmar 265 þúsund krónur í málskostnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sex Íslendingar sem tengjast fjölskylduböndum ákærðir fyrir hrottalega frelsissviptingu sem þykir vart eiga sér hliðstæðu í íslenskum rétti

Sex Íslendingar sem tengjast fjölskylduböndum ákærðir fyrir hrottalega frelsissviptingu sem þykir vart eiga sér hliðstæðu í íslenskum rétti
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Áætlun um vopnaða uppreisn í Íran sögð í vinnslu

Áætlun um vopnaða uppreisn í Íran sögð í vinnslu
Fréttir
Í gær

Brjáluð út í föður sinn og óskar honum dauða – „Það er til sérstakur staður í helvíti fyrir hann”

Brjáluð út í föður sinn og óskar honum dauða – „Það er til sérstakur staður í helvíti fyrir hann”
Fréttir
Í gær

Leiddist á borgarstjórnarfundi og fór að rífast og hella úr skálum hæðni sinnar – „Minnist á Adolf Hitler og blóðbað á spítala“

Leiddist á borgarstjórnarfundi og fór að rífast og hella úr skálum hæðni sinnar – „Minnist á Adolf Hitler og blóðbað á spítala“