
Fyrrverandi enska landsliðskonan Lynda Hale er látin, 72 ára að aldri.
Hale skráði sig í sögubækurnar í nóvember 1972 þegar hún lék í fyrsta opinbera leik enska kvennalandsliðsins gegn Skotum. Hún skoraði í 3-2 sigri.
Hale vann enska bikarinn þá sjö sinnum og var algjör lykilkona í því að koma enskri kvennaknattspyrnu á kortið. Hennar er því minnst með hlýju í dag.
England mun leika með sorgarbönd í næsta landsleik til heiðurs Hale.