fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Frönsk kona ákærð fyrir náttúruspjöll við Sólheimajökulsveg

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 3. mars 2026 14:00

Frá Sólheimajökulsvegi. Mynd: Google Maps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franskri konu um fimmtugt hefur verið birt fyrirkall og ákæra í Lögbirtingablaðinu.

Konunni er gefið að sök brot gegn lögum um náttúruvernd, með því að hafa, miðvikudaginn 16. apríl 2025, ekið bíl utan vegar við Sólheimajökulsveg í Mýrdalshreppi.

Með utanvegaakstrinum olli konan náttúruspjöllum í mosagróinni jörð.

Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu, lögum samkvæmt, vegna þess að ekki hefur tekist að birta konunni ákæruna. Í fyrirkalli er hún hvött til að mæta við þingfestingu málsins við Héraðsdóm Suðurlands þann 16. apríl næstkomandi. Er sagt að fjarvist hennar frá dómi muni jafngilda því að hún játi sök og verður þá kveðinn upp dómur yfir henni fjarstaddri.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri