

Natan Kolbeinsson hefur sagt af sér sem formaður flokksfélags Viðreisnar í Reykjavík. Hefur hann verið sakaður um að hafa dregið sér fé úr sjóðum félagsins, um fimm milljónir króna.
Þetta kemur fram í frétt Vísis.
Málið hefur verið kært til lögreglu en það uppgötvaðist við yfirferð á ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár. Að sögn Vísis er Natan grunaður um að hafa dregið sér fé á árunum 2024 og 2025 en hafði endurgreitt það fé sem hann dró sér á fyrra árinu áður en reikningar félagsins, fyrir það ár, voru yfirfarnir og því uppgötvuðust brot hans ekki fyrr en nú. Hann er sagður hafa endurgreitt meirihluta fjárhæðarinnar sem hann dró sér en eftir eru sagðar standa 1,7 milljón króna.
Natan hlaut árið 2017 dóm fyrir fjárdrátt en hann nýtti sér stöðu sína sem formaður og gjaldkeri Landssambands æskulýðsfélaga til að draga sér fé úr sjóðum þess.