fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
433Sport

Steini Halldórs eftir stórt tap: ,,Slökkvum á okkur og þá refsa þær“

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 3. mars 2026 20:17

Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland tapaði sannfærandi 3-0 gegn Spánverjum í undankeppni HM í kvöld en leikið var ytra.

Spánn er með besta landslið heims í dag og var ekki í vandræðum með Ísland sem átti litla möguleika á útivelli.

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, ræddi við RÚV eftir tapið í kvöld.

,,Auðvitað vissum við alveg að við myndum fá margar sóknir á okkur og allt það og mér fannst við díla ágætlega við það í fyrri hálfleik en auðvitað er þetta alltaf erfitt, þær eru gríðarlega góðar í litlum svæðum,“ sagði Þorsteinn.

,,Fyrri hálfleikurinn var allt í lagi en þetta snýst um að við megum ekki gleyma okkur þegar boltinn er í þessum svæðum, við þurfum að vera klár á hver á að taka hvaða hlaup og við slökktum aðeins á okkur þarna og þá refsa þær.“

,,Þær eru ógeðslega góðar í litlu svæði, þú þarft mikla einbeitingu og þarft að vera klár að skipta á hlaupum eða elta manninn. Við vildum ekki pressa þær hátt og halda okkur neðarlega og reyna að loka á þær þar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Upplýsa um furðulegt ákvæði sem er í samningum

Upplýsa um furðulegt ákvæði sem er í samningum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fela færslur þar sem kallað er eftir því að Parker missi vinnuna

Fela færslur þar sem kallað er eftir því að Parker missi vinnuna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fullyrðir að Liverpool hafi haft samband vegna sonar síns

Fullyrðir að Liverpool hafi haft samband vegna sonar síns
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga enskra stórliða

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga enskra stórliða