fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Fréttir

Kona varð fyrir hættulegri líkamsárás í Kópavogi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 3. mars 2026 16:30

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu á fertugsaldri, aðfaranótt sunnudagsins 9. júlí árið 2023, utandyra á Kópavogsbraut í Kópavogi.

Maðurinn er í ákæru héraðssaksóknara sagður hafa veist að konunni og slegið hana a.m.k. einu sinni með krepptum hnefa í höfuðið, þannig að hún féll aftur fyrir sig í götuna. Hann er síðan sagður hafa sparkað í höfuð hennar þar sem hún lá í götunni. Brotaþoli hlaut nefbrot og bólgur og mar í andliti í árásinni.

Fyrir hönd konunnar er krafist skaða- og miskabóta að fjárhæð tæplega 2,2 milljónir króna.

Þingfesta átti málið við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun, þriðjudaginn 3. mars, en vegna veikinda hefur þingfestingu verið frestað þar til síðar í mánuðinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
Fréttir
Í gær

Eineltismálið í Kópavogi – Faðir eins úr hópnum ætlar að láta son sinn biðja stúlkuna afsökunar

Eineltismálið í Kópavogi – Faðir eins úr hópnum ætlar að láta son sinn biðja stúlkuna afsökunar
Fréttir
Í gær

Bíræfnir dósaþjófar í Eyjum bættu fyrir brot sín – Hlutu þrátt fyrir það dóm

Bíræfnir dósaþjófar í Eyjum bættu fyrir brot sín – Hlutu þrátt fyrir það dóm