fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Ekki ljóst hvort Tierney fari núna eða í sumar

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 28. janúar 2025 18:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er alveg ljóst að Kieran Tierney er á förum frá Arsenal til Celtic en ekki er víst hvort það verði nú fyrir gluggalok eða í sumar.

Samningur Tierney við Arsenal er að renna út í sumar og verður hann ekki framlengdur. Hefur bakvörðurinn þegar samþykkt tilboð Celtic.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur hins vegar notað Tierney svolítið í undanförnum leikjum. Hefur Skotinn komið inn á í nokkrar mínútur í undanförnum fjórum leikjum.

Það er því ekki víst hvort Arsenal sé til í að sleppa leikmanninum frítt til Celtic núna í janúar eða hvort félagið þurfi að bíða fram á sumar.

Tierney gekk í raðir Arsenal frá Celtic 2019 og fór vel af stað með félaginu. Hann var hins vegar ekki í áætlunum Arteta þegar leið á og var hann lánaður út til Real Sociedad á Spáni á síðustu leiktíð, áður en hann sneri aftur til London í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur