fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fókus

Eiríkur Bergmann með afar persónulega bók – Lýsir ferðalagi frá örvæntingu til sáttar

Fókus
Mánudaginn 18. nóvember 2024 11:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, hefur sent frá sér bókina „Óvæntur ferðafélagi“.

Eiríkur er landskunnur stjórnmálaskýrandi, hann hefur sent frá sér fjölmörg fræðirit en einnig fengist við glæpsasagnagerð. En hann hefur aldrei áður sent frá sér svo persónulegt rit sem þessi bók er, en Eiríkur lýsir bókinni svo í spjalli við DV:

„Þetta er bæði minningabók með skáldaleyfi – fremur en skáldævisaga, sem bókin er kannski öðrum þræði – um eitt og annað úr ævi minni en líka dagbók sem ég fór að halda í glímunni við skyndilegan tinnitus (eyrnasuð) sem sló mig alveg út af laginu fyrir um ríflega fjórum árum. Sem betur fer plagar kvillinn mig ekki lengur en eftir situr þessi bók sem ég er satt að segja ansi feiminn við.

Efra planið lýsir ferðalagi frá örvæntingu til sáttar yfir hálfs árs tímabil. En neðra planið og það fyrirferðameira er lífsferðin, frá æsku sem álappalegur drengur utan veltu í Breiðholti yfir í að verða alþjóðlegur fræðimaður sem flögrar um fjarlæga sali fínerísins. Svo er þetta líka eiginleg ferðasaga en ég hef fengið að koma ansi víða. Ég segi til dæmis frá því þegar ég var sendur af Evrópuráðinu til Hvíta-Rússlands eftir fall Sovétríkjanna til að stuðla að lýðræðisumbótum, varð ráðgjafi brasilískra stjórnvalda í lýðræðismálum og kenndi á einu fátækasta svæði Afríku, svo dæmi sé tekið.“

 

Eiríkur segir að bókin sé líka hugmyndafræðileg ferðasaga hans:

„Ég var tvítugur þegar Berlínarmúrinn féll og heimurinn opnaðist. Ég gleypti í mig hið opna alþjóðasamfélag og sá fyrir mér veröld aukinnar samfléttunnar. En heimurinn tók aðra stefnu og síðan hafa það verið mín fræði að rannsaka þjóðernishyggju, popúlisma og samsæriskenningar.

Þrátt fyrir að þarna kunni að vera alvarlegur undirtónn þá er ég nú líka bara að reyna að segja sögur af ýmsum spaugilegum atburðum sem ég hef upplifað og lent í, rifja til dæmis upp eitt og annað þegar ég var grjótharður götublaðamaður á Helgarpóstinum sáluga.“

Eiríkur segir að það sé erfitt að senda frá sér svo persónulegt efni:

„Ég hef ekki áður sent frá mér svona perónulegt efni, hef ekki verið til viðtals um sjálfan mig opinberlega og því finnst mér svolítið erfitt að senda bókina frá mér. En fyrst ég var á annað borð að því þá er eins gott að fylgja henni eftir, get ekki vikið mér undan því. Bókin varð til sjálfsrækt fyrir mig einan en ég finn á viðtökunum að margir tengja við þetta, þótt ég hafi tekið til máls í þjóðfélagi um mín fræði í áratugi og líka skrifað skálsögur þá hef ég aldrei áður fundið önnur eins viðbrögð við nokkru sem ég hef sent frá mér og nú. Og vonandi geta einhverjir líka haft gaman af þessu pári.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“

Þráir að komast í kuldann á Íslandi – „Ég hata hita“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar

Lögreglan í Miami kærir stórleikarana fyrir meiðyrði vegna Netflix-myndar