fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fókus

„Myndin byggir á minni eigin hjónabandskrísu“

Fókus
Sunnudaginn 15. september 2024 09:30

Elskling er fyrsta mynd Lilju í fullri lengd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norsk-íslenska kvikmyndagerðarkonan Lilja Ingólfsdóttir á heiðurinn að opnunarmynd Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík í ár, RIFF, en hún hefst í Háskólabíói 26. september næstkomandi og stendur til 6. október.

Óhætt er að segja að myndin hafi slegið í gegn, en hún fékk standandi lófatak á hinni virtu kvikmyndahátíð í Karlovy Vary í Tékklandi fyrr í sumar og hreppti þar ekki færri en fimm verðlaun. 

„Móttökurnar eru eiginlega óraunverulegar,“  segir Lilja sjálf, stödd á kvikmyndahátíðinni Cinefest í Búdapest, en búið er að selja myndina til tuttugu landa og er ekkert lát á. 

„Ég er eiginlega hálfringluð. Það er verið að bjóða mér á hátíðir út um allan heim,“ bætir hún við.

Elskling eins og heiti myndarinnar er á norsku, eða Elskulegur á íslensku (e. Loveable), er frumraun Lilju á hvíta tjaldinu, en verkið var frumsýnt fyrr á árinu í Osló og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla athygli fyrir tilfinningarík efnistök og einstaka túlkun aðalleikkonu myndarinnar, Helgu Guren sem samkvæmt umsögn Variety þykir sýna einstakan kjark (e. gutsy performance) í hlutverki Maríu sem reynir að sinna fjórum börnum sínum af álíka metnaði og starfsframanum á meðan seinni eiginmaður hennar, Sigmund, er á stöðugum ferðalögum. Dag einn sinnast þeim aftur á móti heiftarlega sem verður til þess að karlinn fer fram á skilnað.

„Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu,“ útskýrir Lilja. „Ég og maðurinn minn til fimmtán ára lentum í hjónabandskrísu á sínum tíma, eins og gengur – og þaðan er fyrirmyndin komin,“ heldur hún áfram, en ekki einasta búa þau saman, enn þann dag í dag, heldur eiga þau fjögur börn og vinna náið saman; Øystein Mamen er nefnilega tökumaður bíómyndarinnar sem hér er til umfjöllunar.

Variety segir enn fremur í gagnrýni sinni um þetta byrjendaverk Lilju að þar lifni við „egghvasst tilfinningadrama“ (e. emotionally jagged) og enn fremur að myndin sé „óvenjuleg og snjöll saga sem leiti svara við því af hverju annað hjónabandið í röð fari eins og það fyrra, og hverjum, ef einhverjum, það sé að kenna.“

Lilja segir fjölmarga áhorfendur samsama sig myndinni. „Þeir segja hana nístandi sanna. Ég hef ekki undan að tala við konur sem segja mér óðamála að myndin sé um dóttur þeirra eða mömmu þeirra,“ segir Lilja og bætir því við að það sé eins og efniviðurinn hitti fyrir réttu taugarnar. Það séu enn ein ummælin.

„Ætli ég sé ekki búin að vera undirbúa þessa mynd í meira og minna sex ár, eða allt frá 2018,“ rifjar Lilja upp, en hún á að baki tugi stuttmynda frá því hún útskrifaðist úr kvikmyndanámi frá London Film School og síðar Famu í Prag vorið 2001. Elskling er fjórða kvikmyndahandritið í fullri lengd sem hún skrifar.

Maria (Helga Guren) og Sigmund (Oddgeir Thune).

Lilja býr í Osló með Øystein og börnum þeirra hjóna, flutti þangað níu ára gömul frá Íslandi á níunda áratug síðustu aldar, dóttir Tone Myklebost sem fylgist nú með velgengni dóttur sinnar á kvikmyndahátíðinni í Búdapest og víðar um Evrópu, og Ingólfs heitins Margeirssonar, blaðamanns og rithöfundar sem lést vorið 2011.

Og hún hlakkar til að koma heim á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík, síðar í september – og sýna landsmönnum þessa bíómynd sína sem er ein sú umtalaðasta í Evrópu nú um stundir.

Hátíðin hefst sem fyrr segir 26. september í Háskólabíó og stendur til 6. október með úrvali vandaðra kvikmynda og allskonar viðburða sem skipta hundruðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum