fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Eyjan
Þriðjudaginn 9. júlí 2024 08:00

Ole Anton Bieltvedt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Virt efnahagsstofnun í Þýzkalandi, Laenderdaten.info, gerði á tímabilinu 2022-2023 úttekt á því, hver kaupmáttur hinna ýmsu þjóða væri. Voru, annars vegar, reiknaðar út meðaltekjur þegna hvers lands og svo það, hver framfærslukostnaður á mann í sama landi væri.

Varðandi tekjuhliðina byggði stofnunin á VLF (vergri landsframleiðslu), og var framfærslukostnaður reiknaður á grundvelli:

  • Húsnæðiskostnaður; leiga, hiti, rafmagn, vatn
  • Matarkostnaður; matvælakarfan, drykkir, veitingastaðir
  • Fatnaður; Föt hvers konar og skótau
  • Heilsa og líkamsrækt; Lyf og læknar, snyrtivörur, heilsurækt
  • Ferðamennska; Bíll, benzín, olía og rafmagn, tryggingar, opinberar samgöngur
  • Frítími og menning; bíó, hljómleikar, leikhús, íþróttir, tómstundir
  • Samskipti; sími, internet, kapalsjónvarp, streymisþjónusta
  • Menntun; bækur, blöð, áskriftir, endurmenntunarnámskeið, skólagjöld.

Stofnunin stilliti dæminu þannig upp að staðan í Þýzkalandi, tekjur og framfærslukostnaður þar, myndaði samanburðargrundvöllinn: Var kaupmáttarvísitalan þar sett á 100 stig.

Samanburðurinn sýndi svo, hvar kaupmátturinn og þá um leið hin efnahagslega velferð íbúanna, væri meiri eða minni en í Þýzkalandi.

Dæmi um þjóðfélög, þar sem þegnarnir búa yfir meiri kaupkrafti en Þjóðverjar, voru Noregur (133,6% miðað við Þýzkaland á 100%), Lúxemborg (131,5%), Singapúr (126,4%), Bermúdaeyjar (123,5%), Færeyjar (114,1%) – Færeyingar búa, sem sagt, við afgerandi meiri velferð en Þjóðverjar – Írland (113,1%), Sviss (110,7%), USA (109,4%), Svíþjóð (104,8%), Holland (104,4%), Austurríki (102,6%), Hong Kong (100,4%).

Allar þessar þjóðir búa, sem sagt, við meiri efnahagslega velferð en Þjóðverjar. Fá meira fyrir peningana sína, og hafa það þannig betra.

En, hvar stöndum við, Íslendingar, þá?

Því miður aftarlega á merinni. Okkar prósenta miðað við Þýzkaland er 85,6%. Í reynd þýður þetta, að kaupmáttur Norðmanna er 56% meiri en okkar, Lúxemborg, Singapúr og Bermúda, allt smáþjóðir eins og við, eru með 44% til 54% meiri kaupmátt, en við, Færeyingar, sem sagt, með 33% meiri efnahagslega velferð, en við, og svona mætti áfram telja.

Bjarni Benediktsson, nú forsætisráðherra landsins, hefur verið mikið í því að lýsa yfir ánægju sinni með það, hversu gott við hefðum það hér, væntanlega þökk honum, Sjálfstæðisflokknum og þeirra samherjum. Telja verður þar Framsóknarflokkinn með. Því miður kemur hér annað á daginn.

Flestir, sem við erum að bera okkur saman við, koma mun betur út en við. Færeyingar, sem eru aðeins um 55 þúsund manns – auðvitað er miklu dýrara að halda svo fámennu þjóðfélagi úti, en þeim, sem stærri eru – landstjórnin þar tryggir íbúum sínum meira að segja þriðjungi meiri velferð en ríkisstjórn Íslands hefur tekizt að tryggja Íslendingum.

Það hlýtur að fara að koma að því, að landsmenn átti sig á, að það er kominn tími á Bjarna Ben, Sigurð Inga og allt það blessaða lið.

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir