fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Segir að Andrés prins hafi gert skelfileg mistök

Pressan
Þriðjudaginn 9. janúar 2024 11:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alan Dershowitz, fyrrverandi lögmaður Jeffrey Epstein, telur að Andrés prins hafi gert skelfileg mistök þegar hann sættist á að greiða bætur eftir að Virginia Giuffre sakaði hann um nauðgun.

Mjög hefur gustað um Andrés prins á undanförnum árum en hann er sonur Elísabetar Bretadrottningar. Andrés var vinur Epstein og árið 2020 var tilkynnt að hann myndi láta af öllum opinberum hlutverkum sínum vegna tengsla sinna við auðmanninn.

Það var svo í ágúst 2021 að hin bandaríska Virginia Giuffre sakaði Andrés um að hafa nauðgað sér þegar hún var 17 ára. Málið var leyst utan dómstóla í febrúar 2022þannig að Andrés greiddi um tvo milljarða króna í bætur sem runnu meðal annars til góðgerðasamtaka Giuffre.

Dershowitz segir að það engum vafa undiropið að Andrés hefði unnið málið fyrir dómstólum ef það hefði farið alla leið þangað. Segir hann að Andrés hafi verið beittur þrýstingi af móður sinni heitinni og að lokum látið undan.

„Ef hann hefði barist þá held ég að hann hefði unnið. Ég held að málinu hefði verið vísað frá af ýmsum ástæðum,“ segir Dershowitz sem er þrautreyndur prófessor í lögum og hefur meðal annars unnið fyrir OJ Simpson, Julian Assange, Harvey Weinstein og Donald Trump.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda

Tveir lögreglumenn dæmdir til dauða fyrir dráp á mótmælanda
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni

Vísindamenn segja niðurstöður nýrrar rannsóknar um gagnaver mikið áhyggjuefni
Pressan
Í gær

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
Pressan
Í gær

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Í gær

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um

Notar þú símann þegar þú ert að elda? – Þá skaltu hugsa þig vel um
Pressan
Í gær

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna