

Morgunblaðið ætlar að senda hóp sex blaðamanna og ljósmyndara á EM 2016 í knattspyrnu og Fréttablaðið fimm starfsmenn. Fotbolti.net mun einnig eiga fimm fulltrúa á mótinu og 433.is tvo. DV og Kjarninn senda hvort sinn blaðamanninn. Mótið í Frakklandi verður því prýtt íslenskum fjölmiðlamönnum eins og Kolbeini Tuma Daðasyni, fréttastjóra Vísis, og Þórði Snæ Júlíussyni, ritstjóra Kjarnans.