fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Eyjan

Jóna Katrín nýr skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 13. febrúar 2023 16:12

Jóna Katrín Hilmarsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Jónu Katrínu Hilmarsdóttur í embætti skólameistara Menntaskólans að Laugarvatni til fimm ára frá 15. febrúar 2023. Kemur þetta fram á vef Stjórnarráðsins.

Jóna Katrín lauk B.A.-prófi í ensku í júní 2007 og M.Paed-prófi í sama fagi árið 2010 við Háskóla Íslands. Þá lauk hún kennslufræðinámi til kennsluréttinda á meistarastigi við Háskóla Íslands árið 2010. Jóna Katrín er með viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá árinu 2020 og hefur lokið hluta af námi á meistarastigi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun menntastofnana.

Jóna Katrín hefur starfað við menntamál frá árinu 2007, bæði í grunn- og framhaldsskóla. Hún kenndi ensku á námskeiðum fyrir fullorðna og fyrir fólk í atvinnuleit við Fræðslunet Suðurlands árin 2008–2010. Þá hefur Jóna Katrín starfað við Menntaskólann að Laugarvatni frá árinu 2010 sem enskukennari, fagstjóri og áfangastjóri. Auk þess starfaði hún sem aðstoðarskólameistari skólans frá apríl 2021 til mars 2022 og hefur tvívegis starfað sem settur skólameistari, annars vegar frá september 2020 til og með mars 2021 og hins vegar frá mars 2022 til og með janúar 2023.

Alls sóttu tveir umsækjendur um embættið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna