fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
Eyjan

Enn einu sinni kom Trump Bandaríkjamönnum á óvart – Segja botninum náð hvað varðar heimsku

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 5. desember 2022 07:45

Donald Trump vill ógilda stjórnarskrána. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörgum Bandaríkjamönnum brá í brún um helgina þegar þeir sáu umfjöllun fjölmiðla um færslu Donald Trump, fyrrum forseta, á samfélagsmiðlinum Truth Social, sem er í hans eigu, á laugardaginn. Þar kallaði hann eftir því að stjórnarskrá landsins yrði gerð ógild að hluta.

Færslan var mikið rædd í hinum ýmsum spjallþáttum og sú spurning hefur vaknað hvaða áhrif færslan mun hafa á möguleika Trump á að verða forseti á nýjan leik.

Í færslu sinni sagði Trump að rangt hafi verið haft við í forsetakosningunum 2020, sem er lygi sem hann hefur haldið fram allar götur síðan hann tapaði í kosningunum, og að svindl af þessu tagi geri að verkum að hægt sé að ógilda stjórnarskrána og öll lög og reglur er tengjast kosningum og setja hann í embætti forseta. Að auki sakaði hann stóru tæknifyrirtækin um að starfa náið með Demókrötum.

Þessi skrif hans komu í kjölfar birtingar tölvupósta starfsfólks Twitter þar sem vöngum var velt um gögn sem fundust í fartölvu Hunter Biden, sonar Joe Biden forseta, en hann hefur ítrekað verði tengdur við vafasöm viðskipti.

Líklega vakna margir Bandaríkjamenn í dag og vilja gjarnan fá svar hjá Trump við hvað hann meinti eiginlega þegar hann skrifaði fyrrgreinda færslu um stjórnarskrána.

Það hljóta að teljast stórtíðindi að fyrrum forseti og núverandi forsetaframbjóðandi lýsi yfir vilja til þess að stjórnarskrá Bandaríkjanna verði felld úr gildi. Fátt er líklegra heilagra í hugum Bandaríkjamanna en stjórnarskráin sem hefur allt frá gildistöku hennar 1789 verið talin pólitískt frelsistákn.

Ummæli Trump vöktu að vonum hörð viðbrögð meðal Demókrata sem skófu ekki utan af hlutunum í færslum á samfélagsmiðlum um helgina né í spjallþáttum. Sögðu þeir meðal annars að nú væri botninum náði í heimsku í bandarískum stjórnmálum.

Nokkrir Repúblikanar hafa einnig fordæmt færsluna en spurningin er auðvitað hversu djúpt gagnrýni þeirra ristir þegar kemur að Trump sem hefur enn góð tök á flokknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn

Sigmundur Ernir skrifar: Flestir kjósa til vinstri, líka hægrimenn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben

Orðið á götunni: Katrín græðir tæpast á tengslum við handlangara Bjarna Ben
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands

Vilja gera Snæfellsjökul að forseta Íslands
Eyjan
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“