NY Post skýrir frá þessu og segir að Viviana Fusaro, bæjarstjóri í Feltre, Belluno, í Veneto-héraði, hafi staðfest þetta. Hún sagði að yfirvöldum hafi borist fréttir um hörmulegt andlát Maria Cristina Masaccos.
The Sun segir að Maria hafi verið vön fjallaklifri. Hún var að klifra með þremur vinum sínum þegar slysið átti sér stað.
Vinirnir tilkynntu strax um slysið og þyrla var send á vettvang. Maria var látin þegar að var komið.