fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Ummæli Helga Valbergs í fréttunum í gær vekja reiði – „Hvaða farsi er þetta eiginlega?“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 6. nóvember 2022 17:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti töluverða athygli þegar Helgi Valberg Jensson, yfirlögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra, mætti í kvöldfréttir RÚV í gær til að svara fyrir harða gagnrýni á aðgerðir lögreglu þar sem 15 hælisleitendum var vísað með valdi úr landi í síðustu viku.

Bogi Ágústsson spurði Helga út í málið og fékk þau svör að aðgerðir sem þessar séu með erfiðustu verkum lögreglunnar.

„Þetta eru einu erfiðustu aðgerðir lögreglu og taka á alla málsaðila, ekki síst starfsfólk lögreglu sem og þá sérstaklega aðilana sjálfa. Það verður mjög áþreifanlegt að mál þeirra er komið á ákveðna endastöð. Þetta er ekki verkefni sem nokkur maður hefur ánægju af“

Bogi spurði Helga: „Þið takið farsíma af fólki, þið meinið því að hafa samband við lögmenn sína. Einn maður sagði við okkur að þið hefðuð dregið húfu niður fyrir andlitið á honum, handjárnað hann fyrir aftan bak – er þetta nauðsynlegt?“

Helgi sagði að engum sé meinað að hafa samband við lögmann sinn og spurði Bogi þá hvernig fólk gæti hringt í lögmann ef farsíminn er tekinn af þeim.

„Farsími er tekinn af fólki stundum til að tryggja öryggi,“ svaraði Helgi þá og spurði Bogi þá hissa á móti: „Fyrirgefðu, eru farsímar hættulegir?“

Helgi útskýrði að farsímar séu ekki hættulegir en hins vegar sé þarna um handtekna einstaklinga að ræða og þá beri lögreglu að tryggja öryggi þeirra.

Segja má að þessi orðaskipti hafi vakið töluverða athygli, sem og það að Helgi hafi tekið fram að ekki sé kveikt á búkmyndavélum lögreglumanna allan tímann á meðan aðgerðum stenudr – af tillitsemi við fólkið sem sé í óþægilegum aðstæðum.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“