fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Eyjan

Inkasso og Momentum sameinast

Eyjan
Fimmtudaginn 13. október 2022 09:40

Inkasso og Momentum sameinast

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hluthafar Inkasso ehf. og Momentum ehf. hafa náð samkomulagi um sameiningu félaganna og kemur hún til framkvæmda síðar í þessum mánuði. Í fréttatilkynningu segir að þar með verði til afar öflugt og framsækið fjártæknifyrirtæki á greiðslu- og innheimtumarkaði, sem mun eins og fyrirrennarar þess, sinna frum- og milliinnheimtu fyrir viðskiptavini sína, og lögfræðiinnheimtu fyrir milligöngu Gjaldheimtunnar.

Sameinað félag, Inkasso-Momentum, er sagt hafa enn meiri burði til að þjónusta og þróa lausnir fyrir viðskiptavini sína og greiðendur og þar með verði áðurnefnd sameining öllum núverandi viðskiptavinum til hagsbóta. Markmið sameinaðs félags er að skara fram úr samkeppnisaðilum sínum þegar kemur að árangri fyrir viðskiptavini sína, hvort sem litið er til betra fjárflæðis eða ánægju og tryggðar greiðenda.

Með sameiningu Inkasso og Momentum verður til feikna öflugt félag með skýr markmið og framtíðarsýn. Gagnsæi, samfélagslega ábyrg innheimta og framsæknar stafrænar lausnir hafa nú þegar skapað fyrirtækjunum sérstöðu á markaði en með sameiningunni verður slagkrafturinn einfaldlega enn meiri. Við hlökkum til að veita viðskiptavinum okkar og greiðendum enn betri þjónustu. Að auki mun sameinað félag nýta fjártækni til að styrkja og auka vöruframboð til að mæta kröfum markaðarins á næstu misserum,” segir Guðmundur Magnason, framkvæmdastjóri hins sameinaða félags.

Sigurður Rúnar Birgisson, lögmaður, verður áfram framkvæmdastjóri Gjaldheimtunnar en Kristinn Hallgrímsson hrl. verður stjórnarformaður Inkasso-Momentum. Fyrirtækið verður til húsa í Kauphallarhúsinu svokallaða að Laugavegi 182, Reykjavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt