Öllum í smábænum Raymond í Washington fylki líkaði við Michelle ,,Shelly” Knotek. Shelly var hamingjusamlega gift þriggja barna móðir og höfðu Knotek hjónin orð á sér fyrir að vera félagslynd og hjálpsöm og opna heimili sitt fyrir þeim sem minna máttu sín.
Eða svo var talið þar til sannleikurinn kom í ljós. Reyndist hann hryllilegri en nokkurn grunaði.
Æskuárin
Shelly var elst þriggja systkina, fædd í Raymond árið 1954. Móðir hennar var alkóhólisti sem barðist við geðræn vandamál og yfirgaf börn sín þegar að Shelly var sex ára. Flutti hún ásamt tveimur yngri bræðrum til föður síns og stjúpmóður. Yngri bræðrunum leið strax vel í öryggi nýja heimilsins en Shelly átti erfitt með að aðlagast. Hún píndi og hrekkti yngri bræður sína og ekki leið sá dagur að hún segði ekki föður sínum og stjúpmóður að hún hataði þau.
Þegar að Shelly var 13 ára var móðir hennar myrt en Shelly felldi ekki tár við fréttirnar. Aftur á móti versnaði hegðun hennar enn frekar með íkveikjum og þjófnuðum. Faðir hennar og stjúpmóðir gáfust upp þegar hún var 15 ára og sendu hana til ömmu sinnar í von um að sú gamla næði einhverri stjórn.
Svo var ekki og stakk Shelly af 17 ára gömul til að gifta sig. Það hjónaband liðaðist í sundur svo og hið næsta en árið 1987 gekk Shelly í hjónaband í þriðja sinn, nú með David Knotek, og í þetta skiptið virtist sem allt væri í himnalagi.
David
David hreinlega tilbað konu sína og stjúpdætur og lagði sig í líma við að tryggja fjölskyldunni allt hið besta. Dætur Shelly af fyrri hjónaböndum, þær Nikki, 12 ára, og Sami, 9 ára, elskuðu einnig stjúpföður sinn og tóku upp eftirnafn hans. Tveimur árum síðar var þriðja dóttirin, Tori, boðin velkomin í heiminn.
Allt var eins og best var á kosið á Knotek heimilinu. Þau hjón voru vinsæl meðal bæjarbúa og ekki var haldin sá viðburður í skólanum að Shelly væri ekki viðstödd, oft með heimabakað bakkelsi.
En það var langt því fá að allt væri í lagi . Shelly stjórnaði manni sínum og dætrum með harðri hendi. Hún barði David og stúlkurnar, læsti þær inni í hænsnakofa í bakgarðinum og niðurlægði á alla vegu. Því meira sem þær grétu, því hærra hló Shelly. Hugmyndaflug hennar varðandi nýjar tegundir niðurlægingar virtist endalaust. Hún neyddi þær meira að segja til að raka skapahár sín fyrir framan hana.
Shelly gætti sín þó alltaf á að klæða stúlkurnar í fatnað sem huldi sár og marbletti.
David algjörlega undir stjórn konu sinnar og hlýddi henni í einu og öllu. Dæturnar vissu ekkert hvert skyldi leita og engan grunaði hina kátu og hjálpsömu Shelly um neitt misjafnt.
Shane
Árið 1988 flutti Shane Watson inn til fjölskyldunnar. Hann var 13 ára gamall frændi Shelly, faðir hans var í fangelsi og hafði móðir hans misst vinnuna og gat ekki séð um son sinn. Shelly bauð frænda sínum húsaskjól og var mál manna hversu elskuleg þau hjónin væru að taka að sér blessað barnið.
En líf Shane varð að martröð. Shelly refsaði drengnum stöðugt eftir reglum sem hún breytti stundum daglega. Hún skemmti sér við að niðurlægja börnin með því að láta frænda sinn og dætur sína dansa um nakin heilu næturnar. Hún lét þau einnig standa úti í næturfrostinu og hellti yfir þau köldu vatni. Stundum ein, stundum tvö og stundum öll þrjú.
Þess á milli faðmaði hún krakkana, gaf þeim gjafir og eldaði uppáhaldsmat þeirra. Þar til allt byrjaði aftur.
Kathy
Shelly passaði alltaf upp á útlitið og hafði því vingast við hárgreiðslukonu sína, Kathy Loreno. Í desember 1988 lenti Kathy í rifrildi við fjölskyldu sína og var hent út af heimilinu. Shelly, þrátt fyrir af hafa nokkrum mánuðum fyrr boðið litla frænda húsaskjól, bauðst til að hjálpa. Kathy var velkomin ef hún hjálpaði til við heimilisstörfin. Kathy trúði ekki eigin gæfu.
Næstu fimm árin missti Kathy fimmtíu kíló og nokkrar tennur af völdum misþyrminga Shelly. Dæturnar og frændinn þurftu einnig að þola ofbeldi Shelly en alltaf gekk hún lengst gagnvart Kathy. Hún niðurlægði þau öll, svelti, gaf þeim lyf og neyddi þau til að drekka eigið þvag. Eiginmaðurinn David stóð einfaldlega til hliðar og horfði á án þess að lyfta fingri til að hjálpa börnunum og Kathy.
Árið 1994 hvarf Kathy Loreno og sagði Shelly hverju sem heyra vildi að Kathy hefði stungið af með elskhuga sínum. Hún lést aftur á móti úr misþyrmingum og hungri, 36 ára gömul.
Leyndarmál Shane
En Shane Watson hafði á laun skráð allt sem gekk á. Hann hafði meira að segja ná að taka ljósmyndir af Kathy rétt áður en hún hvarf. Hún var grindhoruð, marin og blá, með skallabletti og í hana vantaði tennur. Shane trúði frænku sinni Nikki fyrir að sennilega væri Kathy dáin og hygðist hann fara til lögreglu með myndirnar.
En Nikki var það hrædd við móður sína að hún sagði henni alla sólarsöguna. Til að koma í veg fyrir að Shane færi til lögreglu skipaði Shelly bónda sínum að skjóta frænda og brenna lík hans. Líkt og alltaf hlýddi David konu sinni.
Shane hvarf í febrúar 1995 og sagði Shelly hann hafa viljað standa á eigin fótum, flutt út og fengið atvinnu í öðru fylki.
Ronald
Árið 2001 bauð Shelly hinum 57 ára gamla Ronald Woodworth húsaskjól. Hann var einstæðingur, fyrrverandi hermaður sem hafði átt í nokkrum erfiðleikum við að fóta sig í lífinu. Shelly niðurlægði Ronald á alla mögulega vegu. Hann mátti ekki nota salernið og varð því að gera þarfir sínar úti. Hún skemmti sér við að láta hann klifra upp á þak og láta hann hoppa niður og endurtók leikinn allt þar til báðir fætur hans brotnuðu.
Enga fékk hann læknishjálpina en þess í stað hellti Shelly klór á sár hans.
Árið 2003, tveimur árum eftir komuna á Knotek heimilið lést Ronald og gróf hin ávallt hlýðni David hann í garðinum. Þeim sem spurðu var sagt að Ronald hefði fengið gott tilboð um atvinnu og flutt út.
En nú var yngsta dóttirin, hin 14 ára gamla Tori, farin að átta sig á að eitthvað mikið væri að á heimilinu.
James
Árið 2002 hafði Shelly tekið að sér að sjá um hinn 81 árs gamla James McClintock. James var vel efnaður, ógiftur og barnlaus, og bjó einn í afar veglegu húsi. Nokkrum vikum síðar lést gamli maðurinn af völdum höfðuáverka og sagði Shelly hann hafa dottið niður stiga.
Fyrir fallið hafði hann þó náð að gera nýja erfðaskrá og var enginn önnur en Shelly Knotek hans einkaerfingi.
Þegar þarna var komið við sögu voru Nikki og Sami orðnar fullorðnar og fluttar út. En hin 14 ára Tori bjó enn heima. Hún trúði systrum sínum fyrir að sennilega hefði móðir þeirra myrt Ronald Woodworth.
Nikki og Sami höfðu reynt að gleyma fortíðinni en við frásögn litlu systur sína vissu þær að eitthvað þyrfti að gera. Og það strax.
Saman fóru þær systur á fund lögreglu.
Sannleikurinn kemur i ljós
Lögregla hóf rannsókn og fljótlega fannst lík Ronalds í garðinum. Hann hafði verið myrtur og þann 8. ágúst 2003 voru Shelly og David Knotek handtekin.
Íbúar í Raymond voru í áfalli. Hvernig gat á því staðið að fólk hefði verið pyntað og myrt af í hjarta bæjarins án þess að nokkurn grunaði eitthvað misjafnt? Og það af góðborgurum sem leiddu félagsstarf og góðgerðastarf Raymond?
Tori var sett í umsjá systra sinna.
Við yfirheyrslur játaði David að hafa skotið Shane Watson, brennt lík hans, og hent öskunni í sjóinn. Hann játaði einnig að hafa grafið Ronald Woodworth en að Shelly hefði myrt hann. Kathy Loreno hefði dáið af völdum langvarandi misþyrminga og hungurs af hendi Shelly.
Árið 2004 var David Knotek var dæmdur í 15 ára fangelsi. Hann fékk frelsið 2019.
Michelle Knotek játaði á sig manndráp á Kathy Loreno og morð á Ronald Woodworth gegn því að sleppa við lífstíðardóm. Hún fékk var dæmd til 22 ára tugthúsvistar.
Ekki tókst að sanna að höfuðsárin sem urðu James McClintock að bana væru af mannavöldum.
Allar hafa systurnar þrjár fyrirgefið föður sínum og segja hann góðan og ástríkan mann en afar veiklundaðan. Hans stóra ógæfa hafi verið að verða ástfanginn af Shelly. Þær eru enn afar hræddar við móður sína og segja hana aldrei mega fá frelsið.
Til stóð að Michelle fengi reynslulausn í júní síðastliðnum og brugðust systurnar illa við þeim fréttum.
Svo virðist sem yfirvöldum hafi snúist hugur því nú í upphafi september 2022 er Shelly Knotek enn skráð í umsjá fangelsisyfirvalda Washington.