Vopnahlé milli Ísraels og palestínskra hersveita gekk í gildi seint í gærkvöldi eftir þrjá daga af árásum sem drap tugi Palestínumanna, samkvæmt AP. Síðustu dagar hafa verið þeir verstu síðan Ísrael og Hamas háðu 11 daga stríð í fyrra. Samningar náðust með hjálp Egypta klukkan hálf tólf í gærnótt á staðartíma. Flugskeyti flugu báðum megin við landamærin alveg upp að mínutunni og Ísrael sagðist munu svara harkalega ef vopnahléð yrði rofið.
Ísraelskar herflugvélar hafa gert loftárásir á Gaza-svæðinu síðan á föstudag og palestínskar hersveitir skutu hundruðum flugskeyta á móti. Hættan á að bardagarnir yrðu að stríði var há á meðan samkomulagi var ekki náð. Ísrael sagði að sum dauðsföllin hafi komið til fyrir feilskot. Hamas, leiðtogar Gaza-svæðisins, hélt sér á hliðarlínunni mögulega vegna hræðslu um hefnd frá Ísrael og að efnahagssamningar þeirra og Ísrael sem efla stjórn þeirra á svæðinu.
Ísrael hóf aðför sína á föstudag með því að drepa leiðtoga einnar hersveitarinnar palestínsku og drápu svo annan á laugardaginn. Seinni leiðtoginn, Khaled Mansour, var drepinn í flugskeytaárás á íbúðablokk í Rafah flóttamannabúðunum á sunnanverðu Gaza-svæðinu sem drap einnig tvö aðra hermenn og fimm óbreytta borgara. Flugskeytið olli því að blokkin hrundi og olli miklum skemmdum á hús í nágrenninu.