Konan skrifaði færslu um málið í Facebookhópinn „Spotted Rothley“ þar sem hún kvartaði undan gjöfinni. Daily Star skýrir frá þessu.
„Hver setti þetta við dyrnar mínar? Getur þú komið og sótt þetta?“ skrifaði hún og birti mynd af munnkörfu fyrir hund en hún var væntanlega ætluð fyrir hundinn hennar.
„Hundurinn minn hefur alls enga þörf fyrir þetta og ef þú ert að gefa í skyn að hundurinn minn gelti eða bíti, þá hefur þú mjög rangt fyrir þér. Einu skipti sem það heyrist í honum er þegar einhver bankar hjá mér,“ skrifaði hún og bætti við: „Þetta er mjög óforskammað og þú ættir kannski að endurmeta hvernig þú tekst á við vandamál sem ekki eru til staðar.“
Eins og alltaf voru margir reiðubúnir til að tjá sig um málið og margir þeirra gáfu í skyn að munnkarfan væri kannski ekki ætluðu hundinum heldur eiganda hans. „Kannski er hún fyrir eigandann sem talar meira en hann bítur?“ skrifaði einn.