fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Gunnar Smári fer yfir feril Bjarna og reiðir hátt til höggs – Segir hann spilltasta og óvinsælasta stjórmálamann sögunnar

Eyjan
Fimmtudaginn 28. apríl 2022 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson er ekki mikill aðdáandi Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Vísir birti í morgun aðsenda grein frá Sósíalistaforingjanum þar sem hann fer yfir feril Bjarna í ljósi þess að 70,7 % kjósenda sögðust bera lítið traust til ráðherrans. Segir Gunnar Smári að engum stjórnmálamanni hafi verið treyst minna í gegnum gjörvalla Íslandssöguna.

„Aldrei áður hefur vantraust á stjórnmálamann mælst 71%. Jafnvel þótt við leituðum til annarra landa er hæpið að við finnum viðlíka höfnun þjóðar á nokkrum stjórnmálamanni. Þegar Richard M. Nixon flaug í þyrlu frá Hvíta húsinu, eftir að hafa sagt af sér vegna Watergate-hneykslisins, treystu hlutfallslega fleiri Bandaríkjamenn Nixon en Íslendingar Bjarna í dag. Og mun færri vantreystu Nixon en Bjarna. Vantraust Íslendinga á Bjarna er því heimssögulega stórt og merkilegt,“ skrifar Gunnar Smári.

Hann segir að ástæðan fyrir vantraustinu sé sú að stjórnmálaferill Bjarna hafi verið litaður af hverju hneykslismálinu á fætur öðru. „Bjarni er nefnilega ekki bara óvinsælasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar heldur líklega einnig spilltasti stjórnmálamaður sögunnar. Þess vegna treystir fólk honum ekki,“ skrifar Gunnar Smári ennfremur og birtir svo yfirlit yfir feril Bjarna.

Yfirferð Gunnars Smára yfir feril Bjarna Ben:

10. maí 2003:Bjarni Benediktsson kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

12. febrúar 2008:Bjarni skrifar undir veðsamninga dagsetta aftur á bak í tímann til að bjarga Milestone, félagi Wernersbræðra, frá gjaldþroti. Með þessum gjörningi voru færðir 10 milljarða króna frá Glitni til eigenda bankans þvert á lánareglur bankans. Bjarni var stjórnarformaður Vafnings. Upphæðin jafngildir 18.500 mkr. í dag.

6. október 2008: Bjarni innleysti 50 mkr. eign sína í sjóði 9 í Glitni og bjargaði sér þannig frá miklu tapi, öfugt við meginþorra þeirra sem lagt höfðu sparnað sinn inn í þennan sjóð. Upphæðin jafngildir 82 mkr. á núvirði. Bjarni sat í efnahags- og skattanefnd á þessum tíma og fékk þar upplýsingar um gríðarlega alvarlega stöðu Glitnis.

29. mars 2009: Bjarni Benediktsson kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins.

8. apríl 2009: Bjarni lýsir því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn muni endurgreiða svimandi háa styrki sem Hrunfyrirtæki veittu flokknum á árunum fyrir Hrun, m.a. 55 mkr. inn í þrotabú FL-Group og Landsbankans. Við þetta hefur ekki verið staðið, nema að litlu leyti. Upphæðin jafngildir um 87 mkr. í dag.

1. desember 2010: Máttur tekinn til gjaldþrotaskipta. Máttur var fjárfestafélag Engeyingar og Wernersbræðra sem átti hluti í Glitni, Icelandair og fleiri félögum. Við gjaldþrotið töpuðust um 33 milljarðar króna á núvirði. Bjarni var stjórnarmaður í Mætti.

21. janúar 2013: Skiptum á þrotabúi EM 13 lokið, en félagið hét áður BNT og var hluti af fyrirtækjasamstæðu N1, sem fjölskylda Bjarna var leiðandi hluthafi í. Bjarni var stjórnarformaður BNT. Engar eignir fundust í búinu en 4,3 milljarða kröfur sem lýst var við fall félagsins 2008/2009. Á núvirði jafngildir þetta um 6.800 mkr. Samtals nam tap vegna gjaldþrota fyrirtækja sem tengdust þessari fyrirtækjasamsteypu Engeyinga og Wernersbræðra vel yfir 200 milljörðum á núvirði.

21. nóvember 2014: Hanna Birna Kristjánsdóttir segir af sér sem innanríkisráðherra eftir að aðstoðarmaður hennar, Gísli Freyr Valdórsson, var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka trúnaðargögnum um hælisleitendur úr innanríkisráðuneytinu í fjölmiðla. Fram að þessu hafði Bjarni og Sjálfstæðisflokkurinn hafnað öllum fréttum um lekann úr ráðuneytinu og lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu og Gísla Frey.

25. nóvember 2014: Landsbankinn selur hlut sinn í greiðslumiðlunarfélaginu Borgun án útboðs til fáeinna aðila, þar á fyrirtækis í eigu ættingja Bjarna. Það fyrirtæki hagnaðist gríðarlega á þessum viðskiptum þar sem Landsbankinn gætti ekki að yfirvofandi greiðslu Visa inn í Borgun. Söluverðið var því langt undir raunvirði. Við söluna á Borgun til Salt pay högnuðust ættingjar Bjarna enn meir.

31. ágúst 2015: Visir greinir frá því að Bjarni hafi verið skráður á stefnumótavefinn Ashley Madisson undir nafninu IceHot 1.

3. apríl 2016: Kastljós Ríkisútvarpsins í samstarfi við aðrir miðla afhjúpa að Bjarni hafi átt þriðj­ungs­hlut í félag­inu Falson&Co. sem skráð var á Seychelles-eyj­­um. Þær eyjar eru þekkt skatta­skjól. Bjarni átti hlut í félag­inu vegna fast­eigna­við­skipta í Dubai sem hann tók þátt í árið 2006.

13. september 2016: Bjarni fær afhenta skýrslu starfshóps um aflandseignir Íslendinga en kýs að halda henni leyndri fyrir þingi og þjóðinni til að forðast umræðu um þessi mál fyrir kosningarnar það haustið. Skýrslan verður ekki opinber fyrr en við ráðherraskipti í fjármálaráðuneytinu, þegar Benedikt Jóhannsson tekur við af Bjarna.

15. maí 2017: Bjarni knýr í gegn samþykki þingmanna Viðreisnar og Bjartrar framtíðar við skipan Sigríðar Andersen á fimmtán dómurum í Landsrétt. Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir síðan þessa skipun ólöglega og Sigríður segir þá af sér sem dómsmálaráðherra.

14. september 2017: Í ljós kemur að Benedikt, faðir Bjarna, hafði veitt manni, sem nauðg­aði stjúp­dótt­ur sinni í tólf ár, um­sögn svo hann gæti feng­ið upp­reist æru. Stundin og síðan aðrir fjölmiðlar og Alþingismenn höfðu vikurnar og mánuðina á undan leitað upplýsinga um þetta mál en engin svör fengið. Sigríður Andersen hafði hins vegar greint Bjarna sjálfum frá þessu einum og hálfum mánuði fyrr.

17. október 2017: Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Þórólfur Halldórsson, sem telja verður innvígðan og innmúraðan Sjálfstæðisflokksmann, setur lögbann á umfjöllun Stundarinnar um þátttöku Bjarna í vafasömum fjármálagjörningum fyrir Hrun.

20. nóvember 2018: Í samtali Miðflokksmanna við tvo þingmenn Flokks fólksins á Klausturbar kemur fram að Bjarni hafði fullvissað Gunnar Braga Sveinsson þegar Gunnar var utanríkisráðherra um að Sjálfstæðisflokkurinn myndi launa honum það með góðri stöðu ef Gunnar skipaði Geir H. Haarde sem sendiherra Íslands í Washington.

12. nóvember 2019: Kveikur Ríkisútvarpsins afhjúpar viðskiptahætti Samherja í Namibíu og tengsl fyrirtækisins við Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra Sjálfstæðisflokksins. Bjarni lýsti yfir trausti á Kristjáni.

23. desember 2020: Bjarna er vísað úr Ásmundarsal ásamt öðrum gestum í samkvæmi sem braut gegn sóttvarnarreglum vegna kórónafaraldursins.

25. september 2021: Lög eru brotin við talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi, en þar er formaður kjörstjórnar er innmúraður og innvígður Sjálfstæðisflokksmaður. Meirihluti kjörbréfanefndar Alþingis undir forystu Birgis Ármannssonar leggur til að ekki verði kosið aftur.

14. febrúar 2022: Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, innmúruð og innvígð Sjálfstæðisflokkskona, boðar blaðamenn sem fjölluðu um skæruliðadeild Samherja til yfirheyrslu. Bjarni lýsir yfir stuðningi við þessa boðun og skammar fjölmiðla fyrir að fjalla um málið sem aðför að réttindum blaðamanna.

6. apríl 2022: Listi yfir kaupendur afhjúpar að Bjarni og bankasýslan höfðu selt í lokuðu útboði hlutabréf almennings í Íslandsbanka með afslætti til föður Bjarna og margra af helstu leikenda í Hruninu.

Grein Gunnars Smára má lesa í heild sinni á vef Vísis

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum