fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Loftvarnarbyrgi seljast sem aldrei fyrr

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 1. apríl 2022 10:00

Munu Norðurlöndin koma sér upp kjarnorkuvopnum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur komið mikill kippur í sölu loftvarnarbyrgja og annar álíka byrgja sem eiga að geta verndað fólk fyrir ýmsum hamförum. Þetta á að minnsta kosti við í Bandaríkjunum.

Eitt þeirra fyrirtækja sem nýtur góðs af þessu er Rising S Company (Rising Bunkers) sem framleiðir margvísleg byrgi og sér um að koma þeim heim til fólks og koma fyrir á viðeigandi stöðum. Í samtali við The Guardian sagði Gary Lynch, stjórnarformaður fyrirtækisins, að á venjulegum mánuði komi um 100 fyrirspurnir um byrgi en síðasta mánuðinn hafi þær verið um 300.

Hann sagði að almennt hafi fyrirspurnum fjölgað um 1.000% síðan 2018. Hann sagðist telja að Bandaríkjamenn séu almennt orðnir hræddari um öryggi sitt, meðal annars vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar, loftslagsbreytinganna og deilna í samfélaginu.

Hann sagði að á einum degi í febrúar hafi hann selt fimm byrgi á verðinu 70.000 til 240.000 dollara. „Það er augljóst að sumir sögðu: „Ég sagði að við þyrftum að fá svona,““ þegar rætt var um þessi mál á heimilinu.

Annað fyrirtæki, sem starfar á sama markaði, er ekki feimið við að notfæra sér stríðið í Úkraínu til að auglýsa vörur sínar: „Nú þegar stríð geisar í Úkraínu og þriðja heimsstyrjöldin er hugsanlega hafin, þá óskar þú þess örugglega að þú eigir byrgi frá Vivo.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Í gær

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Í gær

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld
Pressan
Í gær

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar

Trixið sem fagmenn nota til að sleppa við rendur eftir rúðuþurrkurnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki