Þetta sýna nýjar tölur frá UK Health Security Agency. Dpa skýrir frá þessu. Fram kemur að samkvæmt upplýsingum frá breska heilbrigðisráðuneytinu þá séu 90% minni líkur á að fólk þurfi að leggjast inn á sjúkrahús þegar þrír mánuðir eru liðnir frá því að það fékk örvunarskammt samanborið við þá sem ekki hafa fengið örvunarskammt.
Hjá þeim sem hafa fengið tvo skammta af bóluefni veita þeir um 70% vernd eftir þrjá mánuði og um 50% vernd eftir sex mánuði.
Á þessum grunni mælir bóluefnanefnd bresku ríkisstjórnarinnar með því að íbúar á dvalarheimilum aldraðra og fólk eldra en 80 ára fái ekki fjórða skammtinn af bóluefni. Forgangsverkefni verði að allir þeir sem hafa fengið tvo skammta fái þriðja skammtinn og að óbólusettir fái fyrsta skammtinn eins fljótt og unnt er.
Þetta sagði Wei Shen Lim, formaður nefndarinnar, að sögn dpa. Hann sagði að núverandi gögn sýni að örvunarskammturinn veiti enn góða vörn gegn alvarlegum veikindum og það eigi einnig við um viðkvæmustu hópana. Af þeirri ástæðu sé það niðurstaða nefndarinnar að ekki sé þörf fyrir að gefa örvunarskammt númer tvö.